Já, það er hægt!

 

Elsa Nielsen 

24. nóvember 2012. Michelle Bachelet framkvæmdastýra UN Women skrifar í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi, 25. nóvember (Greinin birtist í Fréttablaðinu):

Ég er oft spurð að því hvort hægt sé að uppræta ofbeldi gegn konum, svo þrálátir og viðvarandi sem þessi glæpir eru. Svar mitt er já. Það er hægt. En aðeins ef við hjálpumst að. Við erum öll ábyrg og það er tími til kominn að leiðtogar okkar standi við þau loforð sem þeir hafa gefið konum.

Í dag á Alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi hvet ég alla leiðtoga til þess að taka skýra afstöðu til að binda enda á ofbeldi gegn konum og stúlkum.   

Á þessum degi á síðasta ári kynnti ég16 skrefa stefnumörkun. Í dag, hvet ég alla oddvita ríkja og ríkisstjórna til að binda enda á þessa ofbeldisplágu sem herjar á sérhvert samfélag, með því að fylkja sér um spennandi alheims átak til að sýna stuðning hvers lands við afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum

Fyrsta skrefið hefur verið stigið: þagnarmúrinn hefur verið rofinn. Í dag hefur heimilisofbeldi verið gert saknæmt í að minnsta kosti 125 ríkjum ríkjum, auk þess sem heilu lagabálkarnir hafa verið samþykktir til höfuðs ofbeldi gegn konum og stúlkum.

Alþjóðlegt samkomulag ríkir um hvert beri að stefna og hefur verið fært í letur í Peking áætluninni. Þá hafa eitt hundrað áttatíu og sjö ríki staðfest Sáttmálann um að uppræta hvers kyns mismunun gegn konum. Þekking á rótum ofbeldisins hefur aukist, og karlar, konur og ungmenni hafa í stríðum straumum skorið upp herör gegn þessari vá. Félagar í óteljandi samtökum vinna þrotlaust í þágu fórnarlamba og í mörgum ríkjum hafa stefnumótendur gripið til eindreginna aðgerða. En þetta er ekki nóg.

Við verðum öll að standa okkur betur í að vernda konur og hindra þessi þrálátu mannréttindabrot. Ríkisstjórnir og leiðtogar verða að sýna gott fordæmi. Það er kominn tími til að ríkisstjórnir hvarvetna standi heimafyrir við þau loforð sem þær hafa gefið á alþjóðavettvangi.
 
Við vonumst til að sjá ný og bætt lög og innlendar áætlanir um að útvega öruggt húsaskjól, ókeypis neyðarlínu og ókeypis heilsugæslu og lögfræðiaðstoð við fórnarlömb. Við höfum fulla trú á úrræðum á sviði menntunar sem ganga út á að kenna mannréttindi, jafnrétti og gagnkvæma virðingu og hvetja ungt fólk til að taka forystu í að enda ofbeldi gegn konum og stúlkum.

Við þurfum á fleiri konum að halda í stjórnmálum, löggæslu og friðargæslusveitum. Við þurfum jöfn efnahagsleg tækifæri og sómasamleg störf fyrir konur.
 
Allar þessar aðgerðir krefjast ákveðinna og kjarkmikilla leiðtoga. Í mars á næsta ári koma leiðtogar ríkja og borgaralegs samfélags saman á fundi nefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu kvenna. Fyrir fundinum liggur að samþykkja áætlun um að hindra og bregðast skilvirkt við ofbeldi gegn konum. Miklar vonir eru réttilega bundnar við fundinn.
Í sumum ríkjum hafa allt að sjö af 10 konum mátt sæta barsmíðum, verið nauðgað, verið misnotaðar eða limlestar á lífsleiðinni. Svo tröllaukið vandamál á heima á borði leiðtoga heimsins. Hvorki friður né framfarir eru mögulegar á meðan konur þurfa að lifa við ótta við ofbeldi.

Í dag er viðurkennt í sívaxandi mæli þvílíkur skaðvaldur ofbeldi gegn konum er. Það er ógn við lýðræði, Þrándur í götu friðar, byrði á efnahag ríkja og hróplegt mannréttindabrot. Hreyfingunni fyrir afnámi ofbeldis gegn konum vex sífellt ásmegin? eftir því sem fleiri og fleiri sannfærast um að ofbeldi gegn konum sé hvorki ásættanlegt né óumflýjanlegt og fleiri ofbeldismönnum er refsað. Þetta er ekki einkamál kvenna heldur ábyrgð okkar allra. Þetta ofbeldi er viðurstyggilegt að það ber að stöðva. Tími afsakana og andvaraleysis er liðinn. Við skulum sýna vilja og ákveðni okkar í verki og auka framlög okkar til þess að brjóta á bak aftur skömm mannkyns: ofbeldi gegn konum.

Já, það er hægt.

Mynd: Please don´t treat us like trash eftir Elsu Nielsen var valin á meðal þrjátíu bestu auglýsingu af 2,400 sem bárust í auglýsingakeppni Sameinuðu þjóðanna um bestu auglýsinguna gegn kynbundnu ofbeldi 2011.