Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu (The United Nations Regional Information Centre (UNRIC)) þjónar Vestur-Evrópu og sér um að dreifa upplýsingum og gögnum til allra landa á svæðinu. Upplýsingastarfið nær til allra þátta samfélagsins og samvinnuverkefni og atburðir eru skipulagðir í samvinnu við ýmsa aðila, þar á meðal ríkisstjórnir, fjölmiðla, frjáls félagasamtök, menntastofnanir og sveitastjórnir. Map of countries in Europe covered by UNRIC UNRIC svarar öllum fyrirspurnum sem fram koma hvort heldur sem er í síma, tölvupósti eða bréflega.

Sameiginlegt vefsvæði UNRIC er starfrækt á 13 tungumálum á svæðinu: dönsku, ensku, finnsku, frönsku, þýsku, grísku, íslensku, ítölsku, hollensku/flæmsku, norsku, portúgölsku, spænsku og sænsku. Á hverju vefsvæði er að finna upplýsingar um helstu atburði, starf og þemadaga á vegum Sameinuðu þjóðanna auk þess sem UNRIC og stofnanir tengdar Sameinuðu þjóðunum fitja upp á á hverjum stað.

Frá 1. janúar 2004 hefur Upplýsingaskrifstofan fyrir Vestur-Evrópu (UNRIC) í Brussel veitt upplýsingum til eftirfarandi landa: Belgía, Bretland, Danmörk, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Ísland, Írland, Ítalía, Lúxemborg, Kýpur, Malta, Mónakó, Noregur, Portúgal, San Marínó, Spánn, Svíþjóð og Vatíkanið. 

UNRIC sér einnig um tengsl við Evrópusambandið á upplýsingasviði.