A-Ö Efnisyfirlit

1. október verður alþjóðlegi kaffidagurinn

Kaffi
Alþjóðlegi kaffidagurinn verður haldinn 2. október. Mynd: Mike Kenneally/Unsplash

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær 10.mars ályktun um að 1. október skuli vera lýstur alþjóðlegi kaffidagurinn. Kaffi er einn vinsælasti drykkur í heimi og ein mest selda verslunarvara á heimsvísu. Finnar neyta mests kaffis á mann í heiminum, og Finnland var raunar á meðal þeirra ríkja sem lögðu tillöguna fram.

Fulltrúi kaffiframeiðsluþjóðarinnar Brasilíu mælti fyrir tillögunni. Hún var samþykkt með með 150 atkvæðum gegn einu (Bandaríkin), en eitt ríki sat hjá (Kanada).

Kaffi er með vinsælustu drykkjum heims.
Kaffi er með vinsælustu drykkjum heims. Mynd: Nathan Dumlao/Unsplash

Ísland í þriðja sæti

Finnland var eitt af 49 löndum sem stóðu að ályktuninni. Samkvæmt gögnum FAOSTAT frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) er kaffaneysla á mann mest í Finnlandi á heimsvísu, eða um 12 kg á mann á ári, en þar á eftir koma Noregur og Ísland, sem endurspeglar sterka kaffimenningu Norðurlandanna. Á eftir Finnlandi koma Noregur (um 9,9 kg á mann á ári), Ísland (9,0), Danmörk (8,7), Holland (8,4) og Svíþjóð (8,2). Stærstu kaffiframleiðslulöndin eru Brasilía, Víetnam og Kólumbía, en Evrópusambandið og Bandaríkin eru stærstu neyslu- og innflutningsmarkaðirnir.

París er fræg fyrir kaffihús.
París er fræg fyrir kaffihús. Mynd: Alex Harmuth/Unsplash

Í ályktuninni er viðurkennt „menningarlegt, félagslegt og sögulegt mikilvægi kaffis, allt frá uppruna þess til mikilvægs hlutverks þess í þróun nútímasamfélaga, þar sem það er orðið ekki aðeins mikilvæg landbúnaðarafurð og lífsviðurværi samfélaga, heldur einnig tákn um félagsleg samskipti, menningarlega tjáningu og hversdagslega hefð milli kynslóða.“

Meira en bara drykkur

„Kaffi er meira en bara drykkur, það er alþjóðleg verslunarvara – allt frá baunum til kaffiþjónustu – sem tryggir lífsviðurværi milljóna bændafjölskyldna og tengir dreifbýlissamfélög við markaði um allan heim”, sagði QU Dongyu, forstjóri FAO. „Með því að viðurkenna gildi kaffigeirans mun vitund um samfélagslegt og efnahagslegt mikilvægi hans aukast og framlag hans til að útrýma fátækt styrkjast. Við hlökkum til að halda daginn og gildi hans hátíðleg.”

Mikilvægi kaffis

Kaffi er meðal mest neyttu drykkja í heimi og hefur neysla á mann á heimsvísu aukist um 1,2 prósent á ári síðasta áratuginn. Geirinn styður við lífsviðurværi um 25 milljóna bænda og skapar atvinnu í allri virðiskeðju kaffis. Á heildina litið skilar alþjóðlegur kaffiiðnaður meira en 200 milljörðum dala í árstekjur.

Kaffiframleiðsla
Kaffiframleiðsla. Mynd: FAO

Kaffi er einnig áfram ein af mest seldu verslunarvörum heims. Árið 2024 fór heimsframleiðslan yfir 11 milljónir tonna og var verslað með um það bil 8 milljónir tonna af kaffibaunum á alþjóðavettvangi. Það ár var verðmæti alþjóðlegrar kaffiframleiðslu metið á tæpa 25 milljarða dala, en heimsviðskipti með kaffibaunir námu um 34 milljörðum dala.

Í ályktuninni er einnig lögð áhersla á framlag kaffiframleiðslu og -vinnslu til nokkurra heimsmarkmiða um sjálfbæra þróun: baráttunnar gegn hungri (heimsmarkmið 2), að draga úr fátækt (heimsmarkmið 1), valdeflingu kvenna (heimsmarkmið 5) og að stuðla að mannsæmandi atvinnu og hagvexti (heimsmarkmið 8).

Sjá einnig hér.