28.október 2014. Listaverk Ólafs Elíassonar og Minik Rosing sem myndað er úr eitt hundrað tonnum af ís frá Grænlandi er nú til sýnis á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn.
Markmiðið er að vekja athygli á næstu skýrslu Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna sem gefin verður út í lok vikunnar. Dansk-íslenski listamaðurinn Ólafur og Minik Rosing, jarðfræðiprófessor sem fæddur er á Grænlandi, standa að baki sýningunni sem opnuð var á sunnudag og lýkur miðvikudag 29. október.

En hvern vegna er þekktur listamaður á borð við Ólaf Elíasson að beita sér í loftslagsmálum?

„Ég vona að fólk snerti ísinn á Ráðhústorginu og verði snortið af því. Meira eða minna allir viðurkenna að loftslagsbreytingar eru staðreynd. Ísinn bráðnar. Yfirborð sjávar hækkar. En hvað erum við að gera?”.

Sjá nánar um störf IPCC: http://www.unric.org/is/component/content/article/44-oktober-2013/26060-ae-tjaldabaki-hja-loftslagsnefndinni
Um fyrri skýrslur IPCC á þessu ári: http://www.unric.org/is/frettir/26184-ahrif-loftslagsbreytinga-qoafturkraefq

