11 ríki hafa fallist á vopnhlé

0
672
COVID-19 vopnahlé
Guterres segir að breitt bil geti verið á milli orða og athafna. UN Photo Evan Schneider.

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti í dag „vopnaðar fylkingar” um allan heim að leggja niður vopn til að greiða fyrir baráttunni gegn COVID-19.

Hann ítrekaði þar með ákall sitt um alheimsvopnahlé frá 23.mars og sagði að nú þegar hefði verið brugðist jákvætt við hvatningu hans. Guterres hefur lýst yfir að COVID-19 sé mesta þolraun sem heimurinn hafi staðið frammi fyrir frá því Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar fyrir 75 árum.

70 ríki hafa lýst yfir stuðningi við ákallið og í að minnsta kosti 11 ríkjum hefur verið fallist á vopnahlé, oftast  í innanlandsátökum.  Þau eru, Filipsseyjar,  Jemen, Kamerún, Kólombía, Líbýa, Myanmar, Mið-Afríkulýðveldið, Suður-Súdan, Súdan, Sýrland og Úkraína.

Aðstæður til að koma aðstoð til skila

„En það er breitt bil á milli orða og athafna,” sagði Guterres. „Það getur verið langt á milli þess að tala um frið og að það skili sér í bættu lífi fólksins sem á í hlut.”

Hann sagði að með því að stöðva átök „væri hægt að skapa aðstæður til þess að koma lífsnauðsynlegri aðstoð til skila.“

Aðalframkvæmdastjórinn kvaðst óttast að COVID-19 gæti orðið olía á eld pólitískrar spennu og ofbeldis.

„Okkur ber að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hlúa að friði og þeirri einingu sem er heiminum nauðsyn til að berjast gegn COVID-19,“ sagði Guterres.