
22.apríl 2016. Nýtt met verður slegið í dag þegar fulltrúar 165 ríkja undirrita Parísarsáttmálann um viðnám gegn loftslagsbreytingum í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Undirritunarathöfnin hefst klukkan 12.30 að íslenskum tíma og er hægt að fylgjast með henni í beinni útsendingu á netinu á webtv.un.org.

Öll stærstu hagkerfi heims og þau sem bera ábyrgð á mestri losun lofttegunda sem valda gróðurhúsaáhrifum segjast ætla undirrita samninginn í dag.
Samkomulagið gengur í gildi 30 dögum eftir að ekki færri en 55 aðildar að Loftslagssátmála Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC) sem standa fyrir 55% útblásturs, hafa staðfest Parísarsáttmálann.
Á meðal ræðumanna eru Getrude Clement, 16 ára útvarpsfréttakona frá Tansaníu og baráttukona í loftslagsmálum, Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, François Hollande, forseti Frakklands og Leonardo DiCaprio, sérstakur sendiherra Sameinuðu þjóðanna í loftslagsmálum.

Nánari upplýsingar um undirritunina: www.un.org/sustainabledevelopment og á Twitter: @GlobalGoalsUN og á Facebook: www.facebook.com/globalgoalsUN.
Sjá nánar um Dag jarðar: http://www.un.org/en/events/motherearthday/
Myndir: Mark Garten/SÞ og WMO
