Loftslagsbreytingar. 2024.
Alþjóða veðurfræðistofnunin (WMO) hefur nú staðfest að árið 2024 hafi verið heitasta ár frá því mælingar hófust. Jafnframt bendi líkur til þess að það hafi verið 1.55 °C hlýrra en fyrir daga iðnbyltingar.
„Þótt einstök ár reynist heitari en sem nemur 1.5 °C markinu þýðir það ekki að langtíma markmiðið náist ekki,“ segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. „Þetta þýðir að við þurfum að við þurfum að leggja enn harðar á okkur til að komast á rétta braut.“
Tíu metár
Niðurstöður WMO byggja á sex mismunandi talnagrunnum um þróun loftslagsins, „Það hafa ekki aðeins eitt eða tvö metár heldur tíu ár í röð,“ segir Celeste Saulo forstjóri WMO.
Guterres segir að ríkisstjórnum beri nú að endurskoða landsáætlanir sínar í loftslagsmálum á þessu ári til að koma í veg fyrir að 1.5 °C hækkun hitastigs til langframa.
„Það er enn tími til að hindra verstu loftslagshamfarirnar. En leiðtogar verða að grípa til aðgerða nú þegar.“
