75 ára afmælisár SÞ hafið með hnattrænni samræðu

0
932
75 ára afmæloi Sameinuðu þjóðanna, Ungt fólk í Senegal
Ungt fólk í Senegal á samkomu Sameinuðu þjóðanna

Sameinuðu þjóðirnar hleyptu af stokkunum um áramótin umfangsmestu samræðu sem um getur um alheimssamvinnu. Markmiðið er að móta betri framtíð í þágu allra. Allt árið 2020 munu Sameinuðu þjóðirnar efna til samræðna á ýmsum vettvangi um allan heim. Tilefnið er 75 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna.

Notast verður við fjórar mismunandi aðferðir til að kanna vilja heimsbúa og þær lausnir sem fólk sér fyrir sér í því skyni að glíma við alheimsvanda.

Einnar mínútu könnun

Auk samræðnanna undir merki SÞ75, verður kannaður hugur fólks um allan heim á stafrænan hátt. “Einnar mínútu könnun” geta allir svarað, en einnig verða gerðar skoðanakannanir í fimmtíu ríkjum. Síðan verður beitt gervigreind til þess að rannsaka þær skoðanir sem birtast í bæði hefðbundnum fjölmiðlum og samskiptamiðlum í sjötíu ríkjum. Með þessu móti verður safnað upplýsingum á fjóra mismunandi stafræna vegu til að kanna afstöðu fólksins til málefna sem brenna á allri heimsbyggðinni. Þessu verður síðan safnað saman sem innleggi í umræðu um stefnumótun heimafyrir og á alþjóðavettvangi.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur til þátttöku í þessu frumkvæði.

Ekkert ríki er eyland

„Ekkert ríki, ekkert samfélag getur tekist á við margslungin vandamál heimsins eitt og sér. Við þurfum að fylkja liði, ekki aðeins til að tala heldur einnig til að hlusta. Það er þýðingarmikið að hvert og eitt ykkar taki þátt í samræðunni. Við þurfum á skoðunum ykkar, úrræðum og hugmyndum að halda til þess að vera betur í stakk búin til að þjóna þeim sem við eigum að þjóna, fólkinu í heiminum.“
Sérstök áhersla er lögð á að ná til ungs fólk og hópa sem ekki koma að öllu jöfnu nærri starfi Sameinuðu þjóðanna.

Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna mun afhenda oddvitum ríkja og ríkisstjórna og hátt settum embættismönnum samtakanna þær hugmyndir og skoðanir sem safnað hefur verið á leiðtogafundi til að minnast 75 ára afmælisins 21.september 2020.

Þeim sem vilja taka þátt í umræðunni er bent á eftirfarandi heimasíðu: www.un.org/UN75.