Yfirvöld á Gasasvæðinu segja að tala látinna hafi nú náð 45 þúsundum frá því átök blossuðu upp fyrir 14 mánuðum í kjölfar hryðjuverkaárásar Hamas á Ísrael.
Á sama tíma hafa mannúðarsamtök fordæmt banvænar loftárásir Ísraela á stríðshrjáð Gasasvæðið, þar á meðal á skóla Sameinuðu þjóðanna þar sem óbreyttir borgarar hafa leitað skjóls.
13 létust og 48 særðust í árásinni að sögn UNRWA, Palestínu-flóttamannahjállparinnar. Engin viðvörun barst að sögn eins fórnarlambanna.

“Ég var á Nasser sjúkrahúsinu í morgun. Á meðal særðra barna var stúlka sem hét Mona, 17 ára. Hún var alvarlega særð á fæti eftir sprengjubrot. Systir hennar var líka á sjúkrahúsnu, en móðir hennar hafði kramist til bana þegar byggingin hrundi,” sagði Louise Wateridge, starfsmaður UNRWA.
Tveggja ára missti sjón á öðru auga
Tveggja ára gömul stúlka, Julia að nafni, varð fyrir alvarlegum höfuðáverkum og missti sjón á öðru augu. Fimm ára gamall bróðir hennar var einnig á sjúkrahúsinu með höfuðáverka.
Börnin höfðu verið rekin fram og aftur sjö eða átta sinnum vegna árása Ísraels, en þau eru frá Gasaborg. Þau höfðu leitað skjóls í húsnæði UNRWA og dvalist þar í sjö mánuði. Nú hafa þau engan griðastað og eru algjörlega vonlaus um framtíðina að sögn Wateridge.
14 500 börn dáin
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að 14 þúsund og fimm hundruð börn hafi nú verið drepin á Gasasvæðinu. Talið er að þúsundir séu enn grafnar undir rústum.
