A-Ö Efnisyfirlit

5 ný ríki kosin í Öryggisráðið

alt

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur kosið fimm ríki til setu í Öryggisráðinu til tveggja ára frá og með 1. janúar 2011. Þau eru Indland, Kólombía, Portúgal, Suður-Afríka og Þýskaland.
Þau leysa af hólmi Austurríki, Japan, Mexíkó, Tyrkland og Úganda.

alt

Indverjum fagnað eftir kjörið (12. október) SÞ-mynd: Evan Schneider.

 

Til að ná kjöri til Öryggisráðsins þarf fulltingi tveggja þriðju hluta viðstaddra ríkja og greiddra atkvæða ríkjanna 192 sem sitja á Allsherjarþinginu. Sætum er úthlutað eftir heimshlutum. 
Ekkert mótframboð var gegn Kólombíu, Indlandi og Suður-Afríku og var hvert þeirra kjörið fulltrúi sins heimshluta í fyrstu umferð kosningar.

alt

Portúgalska sendinefndin tekur við hamingjuóskum eftir að Portúgal náði kjöri til setu í Öryggisráðinu 12. október 2010. SÞ-mynd: Evan Schneider

Þrjú ríki kepptu um tvö sæti sem Vestur-Evrópu og öðrum ríkjum hafði verið úthlutað. Þýskaland var kjörið í fyrstu umferð með 128 atkvæðum. Kosið var á milli Kanada og Portúgals í annari umferð. Portúgal náði kjöri með 150 atkvæðum eftir að Kanada dró framboð sitt til baka.

Ríkin fimm slást í hóp Bosníu og Hersegóvínu, Brasilíu, Gabons, Líbanons og Nígeríu sem sitja í ráðinu til ársloka 2011. Föst sæti eiga svo Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Rússland.

Fyrir fjórum árum þurfti 48 umferðir áður en úrslit fengust um fulltrúa ríkjahóps Suður-Ameríku og Karíbahafsins. Eftir 48. umferðina drógu Gvatemala og Venesúela framboð sín til baka og lýstu stuðningi við Panama sem náði kjöri í kjölfarið.
Lengst atkvæðagreiðslan var árið 1979 þegar kosið var 155 sinnum á milli Kólombíu og Kúbu frá 26. október til 7. janúar. Þá drógu ríkin framboð sín til baka og Mexíkó var kjörið til setu í ráðinu.