A-Ö Efnisyfirlit

63 upphleypt tákn sem skipta sköpum

Kjósandi í Sierra leone með kjörseðil á blindralestri í kosningum 2018.
Kjósandi í Sierra leone með kjörseðil á blindralestri í kosningum 2018. Mynd: UNDP Sierra Leone/Lilah Gaafar

Óhætt er að segja að bylting hafi orðið á þriðja áratug nítjándu aldar, þegar blindraletrið varð til. Alþjóðlegur dagur blindraleturs er haldinn 4.janúar.

Blindraletur er kerfi upphleyptra punkta, sem eru tákn fyrir bókstafi, en seinna var bætt fyrir fleiri táknum, svo sem stærðfræðitáknum og nótum. Upphleyptu táknin má greina með fingurgómum.

Blindraletur er kallað Braille á mörgum erlendum tungum í höfuðið á höfundinum, Frakkanum Louis Braille.

Blint og verulega sjónskert fólk notar blindraletur, auk hljóðupptaka, ýmissa sjónrænna hjálpartækja og upplýsingatækni til að nálgast upplýsingar. Blindraletur Braille er nokkurn veginn eins um allan heim.

 

Íslenska blindraletrið.
Íslenska blindraletrið.

6 tákn á 63 vegu

Á vef Blindrafélagsins er blindraletrið útskýrt á erftirfarandi hátt. „Grunnurinn í blindraletrinu eru sex punktar sem raðað er í tvær raðir lóðrétt með þremur punktum í hverri röð. Punktarnir eru gjarnan nefndir með númerum, punktar einn, tveir og þrír í vinstri röð og punktar fjórir, fimm og sex í þeirri hægri. Samsetning punktanna sex getur verið á 63 mismunandi vegu og getur táknað bókstafi, tölur, ýmis tákn eins og kommur, upphrópunarmerki o.s.frv. Ákveðið bil er á milli punktanna sem er nákvæmlega útreiknað til að tryggja að hægt sé að finna samsetningu hvers stafs/tákns fremst á fingurgómnum.”

Louis Braille kynnti blindraletrið fyrst 1825 og fimm árum síðar bætti hann stærðfræðitáknum og nótum við. Formúlur í stærðfræði, eðlis- og efnafræði eiga sín eigin tákn. Táknið @ er nýjasta viðbótin.

Kjósandi í Sierra leone með kjörseðil á blindralestri í kosningum 2018.
Kjósandi í Sierra leone með kjörseðil á blindralestri í kosningum 2018.

Hann byggið það á máli sem franski höfuðsmaðurinn Charles Barbier hafði búið til fyrir herinn svo hægt væri að eiga hljóðlát orðaskipti á nóttunni.

Hvað er hægt að lesa?

FJölmörg tímarit eru gefin út á blindraletri og ýmis konar upplýsingar eru á boðstólum. Stundum er efnið samið sérstaklega á blindraletri.

Blindraletur í þjóðfélaginu

Blindraletur er víða notað, þótt gera megi miklu betur. Sem dæmi er það notað á takka í lyftum, í lestarklefum, á sætum í lestum og á lestarstöðum. Þá er í sívaxandi mæli gefnar upplýsingar á blindraletri á flugvöllum og (jarð)lestarstöðvum og öðrum opinberum vettvangi. Og með mikilli heppni má vfinna matseðla á veitingahúsum með þessu þarfaþingi Louis Braille, auk lyfja og einstaka matvælapakkninga.

Sjá nánar r, hér og hér.