Fjöldi veraldarbúa, sem eru eldri en sextugir, hefur rúmlega tvöfaldast frá 1995. Þá var fjöldi 60 ára og eldri um 541 milljón en er nú, 2025, 1.2 milljarður. Búist er við að þeir sem verða 65 ára eða eldri árið 2080 verði fleiri en þeir sem verða undir 18 ára aldri. 1.október er Alþjóðlegur dagur eldra fólks.
Lífslíkur á heimsvísu eru nú (2025) 73.5 ár og hafa aukist um 8.6 ár frá 1995. Fjöldi áttræðra og eldri fjölgar enn meira. Búist er við veraldarbúar yfir 80 ára verði 265 milljónir fyrir miðjan næsta áratug og verði fleiri en ungabörn.
Byrðar kvenna
Eftir því sem heimsbyggðin eldist, eykst spurn eftir heilsugæslu og félagslegum stuðningi. Þetta á sérstaklega við þá sem glíma til dæmis við heilabilun, sem er ein helsta ósjálfstæðis og fötlunar hjá eldra fólki.Mikil þörf er á sérhæfðri umönnun til þess að mæta vaxandi þörfum.

Konur eru bæði á meðal þeirra sem sinna mest umönnun og þeirra sem þurfa mest á henni að halda. Konur vinna um það bil 70% þeirra vinnustunda sem inntar eru af hendi ólaunað. Þetta á sérstaklega við um lág- og millitekjuríki, þar sem þjónusta er af skornum skammti. Konur eru sérstaklega útsettar fyrir fátækt á efri árum.
Eldra fólk sem drifkraftur
Alþjóðlegur dagur eldra fólks á vettvangi Sameinuðu þjóðanna snýst að þessu sinni um þemað: „Eldra fólk sem drifkraftar staðbundinna og alþjóðlegra aðgerða. Vonir okkar, velferð okkar og réttindi okkar”. Þessu þema er ætlað að varpa ljósi á það umbreytingarhlutverk sem eldri kynslóðin gegnir í því að byggja upp þolbetri og jafnari samfélög.

Alþjóðlegur dagur eldra fólks er vettvangur til þess að veita eldri kynslóðinni rödd fyrir vonir sínar, berjast fyrir réttindum hennar og hvetja til stefnumótunar með reisn og velferð hennar að leiðarljósi.
Sjá einnig hér.
