A-Ö Efnisyfirlit

7 milljarðar í haust

population

population

Sú staðreynd að íbúar heimsins verða orðnir sjö milljarðar nú í haust er í sviðsljósinu á Alþjóða mannfjöldadaginn, 11. júlí í ár. Sameinuðu þjóðirnar telja að með fæðingu ótiltekins barns 31. október 2011 teljist mannfjöldi heimsins vera orðinn sjö milljarðar.

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna lagði útfrá þessari staðreynd í ávarpi sínu í tilefni dagsins og benti á þær þversagnir sem blöstu við heiminum nú þegar mannfjöldinn væri að ná sjö milljarða markinu.

“Við höfum nægan mat fyrir alla, en samt sverfur hungur að nærri milljarði manna. Við höfum allt sem til þarf til að uppræta marga sjúkdóma, en samt breiðast þeir enn út. Við njótum þeirrar blessunar að búa við auðugt náttúrulegt umhverfi en samt er sífellt gengið á það og því spillt. Allt sæmilegt fólk dreymir um frið en samt ríkir ófriður á alltof stórum hluta heims og vopnakapphlaup gleypir fé.”

Mannfjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) hleypti af stokkunum nýrri herferð: “Sjö milljarða átakinu” (7 Billion Actions) í tilefni dagsins sem miðar að því að glæða skoðanaskipti um áskoranir, tækifæri og aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að tryggja betri framtíð mannkyns.
 “Þótt fátækt, ójafnrétti og aukið álak á auðlindir séu vissulega miklar áskoranir; býr sífellt innbyrðis tengdari heimur yfir ótrúlegum möguleikum,” sagði  Babatunde Osotimehin, forstjóri UNFPA í ávarpi sínu á Mannfjöldadaginn.