27.janúar 2015. Sjötugsafmælisári Sameinuðu þjóðanna og Ári ljóssins verður ýtt úr vör á samkomu í hátíðarsal Háskóla Íslands í dag klukkan 4 í tali, tónum og myndum.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra og Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra ásamt Árna Snævarr, upplýsingafulltrúa Sameinuðu þjóðanna.
Sameinuðu þjóðirnar, sem fagna 70 ára afmæli í ár, hafa útnefnt árið 2015 Alþjóðlegt ár ljóssins og því verður fagnað með ýmsum hætti um allan heim. Hér á landi vinna fjölmargir aðilar saman að ótal uppákomum og viðburðum sem tengjast árinu, þar á meðal Háskóli Íslands, og hefur undirbúningur fyrir árið staðið yfir í allnokkurn tíma.
Dagskrá árs ljóssins á Íslandi hefst formlega 27. janúar með áðurnefndri opnunarhátíð í Hátíðasal háskólans þar sem fulltrúi í undirbúningsnefnd Háskóla Íslands fer rækilega yfir helstu viðburði á árinu. Nemendur Alþjóðaskóla Íslands sýna verk sem tengist ljósinu og kynnt verður ljósleiðarahljóðfæri sem verið hefur í þróun.
https://www.facebook.com/ljos2015

