Líbanon. Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram, með árásum og gagnárásum víðs vegar um svæðið og auknu manntjóni. Stofnanir Sameinuðu þjóðanna vara við því að vaxandi mannfall meðal almennra borgara, fjöldaflótti – sérstaklega í Líbanon – og skemmdir á mikilvægum innviðum dýpki kreppuna. Þá má búast við að raskanir á siglingum og orkuflutningum leiði til hækkandi heimsmarkaðsverðs og aukins fæðuóöryggis.
Rýmingarskipun er enn í gildi í suðurhluta Líbanon og suðurhluta úthverfa Beirút, sem neyðir almenna borgara til að flýja í stórum stíl. Frá og með gærdeginum hafa yfir 115.000 manns leitað skjóls í meira en 500 miðstöðvum, að sögn yfirvalda, á meðan meira en hálf milljón manna hefur skráð sig á flótta. Í Líbanon einu saman hafa nærri 700 þúsund manns, þar á meðal um 200 þúsund börn, neyðst til að yfirgefa heimili sín, „til viðbótar við þá tugi þúsunda sem þegar höfðu verið hraktir á brott í fyrri átökum“, sagði Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).
Þessi þróun kemur í kjölfar helgar þar sem árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran mögnuðust, gagnárása íranskra hersveita víðs vegar um Ísrael og sprenginga í nokkrum Persaflóaríkjum, ásamt árásum Ísraels á Hezbollah í Líbanon.
Um 120 þúsund þeirra sem eru á flótta dvelja í fjöldamiðstöðvum sem stjórnvöld hafa úthlutað, á meðan margir aðrir dvelja hjá ættingjum eða vinum, eða eru enn að leita að húsnæði. Margir – oft á flótta í annað sinn frá því að átökin hófust árið 2024 – flúðu í flýti með nánast ekkert og leituðu öryggis í Beirút, Líbanonfjöllum, norðurhéruðum og hlutum Bekaa-dalsins. Heilbrigðisþjónusta er í hættu en fimm sjúkrahús og tugir heilsugæslustöðva hafa hætt starfsemi.
SÞ kalla eftir öruggum aðgangi fyrir hjálparstarf í Líbanon
Samkvæmt sýrlenskum yfirvöldum hafa meira en 78 þúsund Sýrlendingar komið frá Líbanon frá því að átökin mögnuðust, og yfir 7700 Líbanar flúið til Sýrlands. Meðal þeirra eru sýrlenskir flóttamenn sem höfðu ætlað að snúa heim á næstu mánuðum og aðrir sem flýttu sér nú að snúa aftur vegna ástandsins. Teymi Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) eru í viðbragðsstöðu á sýrlensku landamærastöðvunum ásamt yfirvöldum og samstarfsaðilum.
Í Líbanon hefur UNHCR stutt stjórnvöld og sveitarfélög við að bregðast við kreppunni frá fyrsta degi. Hingað til hefur stofnunin afhent um 168 þúsund einingar af neyðarvörum til meira en 63 þúsund manna á flótta í yfir 270 fjöldaskýlum sem stjórnvöld hafa úthlutað. Þar á meðal eru dýnur, teppi, svefnmottur, svefnpokar og sólarlampar sem hjálpa fjölskyldum á flótta að mæta brýnustu þörfum sínum.
Hjálparstarfsmenn, ásamt innlendum og staðbundnum yfirvöldum, hafa afhent meira en 300.000 heitar máltíðir, 125.000 rúmfatnaðar- og hreinlætisvörur, yfir 150.000 lítra af vatni á flöskum og meira en 80.000 lítra af eldsneyti til tugþúsunda manna á flótta. Sálfélagslegur stuðningur og önnur menntunartækifæri eru veitt börnum.
