9. mars 2015. Þúsundir gengu í gær frá höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York til Times Square í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna og til að krefjast aðgerða af hálfu stjórnvalda um allan heim í þágu jafnréttis kynjanna.
„Við getum aldrei nýtt allan okkar kraft ef við höldum aftur af helmingi íbúanna,“ sagði Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. „Við verðum að bera fulla virðingu fyrir og nýta allan kraft kvenna.“
Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastýra Jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna ( UN Women) sagði að jafnrétti væri einfaldlega skynsamlegt.„Við vitum að þar sem jafnrétti kynjanna ríki, ganga stúlkur og drengir í skóla, við vitum að þar sem jafnrétti ríkir, minnkar ofbeldi og konur geta lifað lífi sínu án ofbeldis. Við vitum einnig að þar sem jafnrétti kynjanna ríkir, stækkar hagkerfið og þróun verður í allra þágu því allir eru þátttakendur í henni.“
Breski leikarinn Paul Bettany var í hópi margra kunnra ræðumanna. „Hér í Bandaríkjunum munu 80% stúlkna verða fyrir barðinu á kynbundnu ofbeldi á meðan þær eru í grunnskóla. Ég á sjálfur dóttur og það er óásættanlegt að að átta af tíu bekkjarsystrum hennar skuli þurfa upplifa slíkt.“
Árlegur fundur nefndar um stöðu kvenna er hafinn í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York en hann stendur í 2 vikur. Aðildarríki samtakanna, einstakar stofnanir þeirra og almannasamtök sitja fundinn. Fundurinn markar tuttugu ára afmæli samþykktar Beijing-yfirlýsingarinnar og aðgerðaráætlunarinnar.
Myndi: Gangan í New York í gær. UN Photo/Devra Berkowitz

