A-Ö Efnisyfirlit

925 milljónir líða hungur

alt

Fjöldi sveltandi folks í heiminum hefur minnkað frá því milljarður manna leið hungur á síðasta ári en enn fylla 925 milljónir manna þennan flokk. Þetta kemur fram í ávarpi Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna á Alþjóðlega matvæladaginn.

“Fyrir suma er þetta fremur dagur án matvæla en matvæladagur,” segir Ban í ávarpi sínu og minnnir á að fyrsta Þúsaldarmarkmiðið að helminga fjölda sveltandi folks fyrir 2015 sé grundvöllur allra henna.

alt

Matartími hjá ungum stelpum á Haítí. SÞ-mynd: Logan Abassi

“Þegar fólk líður hungur, getur það ekki brotist út úr lamandi fjötrum fátæktar og eiga frekar á hættu að verða fyrir barðinu á smitsjúkdómum. Þegar börn svelte, stækkta þau ekki, og hvorki læra né þroskast.”
“Á þessu ári hafa milljónir manna orðið hungry að bráð vegna mannskæðra jarðskjálfta á Haítí, þurrka á Sahel svæðinu og sökum flóða í Pakistan. Fæðu- og fjármálakreppann herjar enn á þá sem standa höllustum fæti. Matarverð er óstöðugt og hafði nýverið ekki verið hærra í tvö ár.”
Þema dagsins að þessu sinni er “Sameinuð gegn hungri.”