A-Ö Efnisyfirlit

Að binda enda á kynfæraumskurð fyrir 2030

Boko Mohammed, sem eitt sinn sá um umskurð sýnir þau tæki og tól sem notuð eru
Boko Mohammed, sem eitt sinn sá um umskurð sýnir þau tæki og tól sem notuð eru. Mynd: UNICEF/Kate Holt

6.febrúar: Alþjóðlegur dagur algjörs umburðarleysis gagnvart kynfæraumskurði kvenna. Misþyrmingar á kynfærum kvenna eru alvarleg mannréttindabrot. Kynfæraumskurður kvenna án læknisfræðilegrar ástæðu getur haft alvarleg heilsufarsleg áhrif. Þau eru líkamleg, kynferðisleg og andleg og vara oft frá æsku til barneignaaldurs og fram á efri ár.

Alþjóðlegur dagur algjörs umburðarleysis gagnvart kynfæraumskurði kvenna er tilefni til að ítreka loforð okkar um að verja réttindi kvenna og stúlkna hvarvetna,” segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi í tilefni dagsins. „Okkur ber að tryggja að þær geti lifað án ofbeldis og ótta. Í sameiningu getum við bundið enda á þetta órættlæti í eitt skipti fyrir öll.“

Shakir sætti kynfæraumskurði sem barn og berst nú gegn þessum (ó)sið
Shakir sætti kynfæraumskurði sem barn og berst nú gegn þessum (ó)sið. Mynd::© UNFPA Ethiopia/MOPIX Production Ethiopia

Í dag hafa 230 milljónir núlifandi stúlkna og kvenna sætt kynfæramisþyrmingum. Þær þurfa á aðgangi að halda að viðeigandi umönnun. Mikið er í veði: 22.7 milljónir stúlkna til viðbótar eru í hættu á að sæta slíkum kynfæramisþyrmingum fram til 2030 ef baráttan er ekki hert. Á hverju ári sæta um það bil fjórar milljónir stúlkna slíkum verknaði, þar af tvær milljónir fyrir fimm ára aldur.

Kynfæraumskurður: mikið í veði

Árangur hefur náðst en helmingur árangurins hefur náðst á síðasta áratug og dugar skammt. Árangur þarf að vera 27 faldur til að fullnægja þeim ákvæðum Heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun sem snúast um þetta. Fjárveitinga er þörf til að árangur náist. Fyrir hverja krónu sem fjárfest er, er afraksturinn tífaldur. Á hinn bóginn er aðgerðaleysi dýrt því það er talið kosta heilbrigðiskerfi 1.4 milljarð Bandaríkjadala að fást við afleiðingar kynfæramisþyrminga.

Ungar stúlkur í Eþíópíu njóta fræðslu um skaða kynfæraumskurðar og snemmbærra hjónabanda.
Ungar stúlkur í Eþíópíu njóta fræðslu um skaða kynfæraumskurðar og snemmbærra hjónabanda.Mynd: UNICEF/UNI532191/Ayene

Alþjóðlegur dagur algjörs umburðarleysis gagnvart kynfæra umskurði kvenna  er að þessu sinni helgaður því að vekja athygli á því að stöðugrar virkni er þörf í baráttunni og þá ekki síst fjárveitinga.

Kynfæraumskurður: Helstu staðreyndir (WHO):

  • Rúmlega 230 milljónir núlifandi stúlkna og kvenna hafa sætt kynfæraumskurði í 30 ríkjum í afríku, Mið-Austurlöndum og Asíu..
  • Stúlkur frá fæðingu til 15 ára aldurs sæta umskurði.
  • Misþyrmingar á kynfærum er mannréttindabrot.
  • Talið er að umönnun fórnarlamba kosti heilbirðiskerfi 1.4 milljarð dala á ári. Reikna má að þessi kostnaður hækki uns kynfæraumskurður hefur verið upprættur.