Að efla frjósemisheilbrigði

0
637
UNFPA
Dánartíðni mæðra hefur snarkminnað undanfarið.

?? 75 ára afmæli – 75 dæmi um að Sameinuðu þjóðirnar skipti sköpum (8) ??

UNFPA – Mannfjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur að leiðarljósi að efla rétt einstaklinga til að taka sínar eigin ákvarðanir um fjölda barneigna og millibils á milli þeirra. UNFPA aðstoðar fólk við að taka upplýstar ákvarðanir og færa þeim, og þá sérstaklega konum aukið vald yfir lífi sínu.

75 ára afmæli SÞ
75 ára afmæli SÞ

Minni mæðradauði

Tíðni mæðradauða hefur minnkað úr 342 á hverjar 100 þúsund fæðingar árið 2000 í 211 á 100 þúsund fæðingar árið 2017. Í mörgum ríkjum hefur tíðni mæðradauða minnkað vegna þess að konur hafa aukna stjórn á fjölskyldustærð. Þá hafa þær fengið aðgang að þjálfuðu hjúkrunarfólki auk neyðarþjónustu ef eitthvað fer úrskeiðis í fæðingu. Í sumum ríkjum hefur tíðni mæðradauða minnkað um helming á einum áratug.

En betur má ef duga skal. Há tíðni mæðradauða er þrálát einkum í fátækum samfélögum. Af þeim hundruð þúsunda kvenna sem letust á meðgöngu eða við fæðngu árið 2018, bjuggu um það bil 86% í Afríku sunnan Sahara og suður Asíu.

Sjá nánar hér: https://bit.ly/38VHCA8