A-Ö Efnisyfirlit

Aðalframkvæmdastjórinn fagnar lausn ísraelskra gísla

António Guterres hefur hitt fjölskyldur ísraelskra gísla nokkrum sinnum að máli.
António Guterres hefur hitt fjölskyldur ísraelskra gísla nokkrum sinnum að máli. Mynd: UN Photo/Mark Garten

Gíslar. Gasasvæðið. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur fagnað lausn ísraelskra gísla á Gasasvæðinu í samræmi við samkomulag um vopnahlé.

„Ég er feginn að þeir hafa öðlast frelsi að nýju og munu senn verða komnir í faðm fjölskyldna sinna eftir að hafa mátt þola gríðarlegar raunir,“ sagði Guterres í yfirlýsingu.

Aðalframkvæmdastjórinn er kominn til Sharm El-Sheikh Summit í Egyptalandi til að taka þátt í leiðtogafundi um frið. Hann sækja leiðtogar rúmlega 20 ríkja en fundinum stýra Abdel Fattah El-Sisi forseti Egyptalands og Donald Trump forseti Bandaríkjanna.

Börn á Gasa gleðjast yfir vopnahléinu.
Börn á Gasa gleðjast yfir vopnahléinu. Mynd: UN News

„Ég hvet alla aðila til að nýta þetta tækifæri ot virða skuldbindingar sínar samkvæmt vopnahléssamkomulaginu til að binda enda á martröðina á Gasa.“

Sameinuðu þjóðirnar vinna hörðum höndum að því að styðja alla viðleitni til að binda átökin á Gasa og minnka þjáningar óbreyttra borgara,” sagði Guterres said.

Næg matvæli fyrir Gasa til þriggja mánaða

 Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hefur sett aukinn kraft í starf sitt á Gasa. Vopnahléssamkomulagið greiðir fyrir aðgangi mannúðarstofnana að veikburða íbúum.

Eftir tveggja ára tortímandi ófrið hafa hundruð þúsunda manna verið á vergangi, matardreifingarkerfi verið í ólestri og aðgangur að nauðsynjum verulega takmarkaður. Með fullum aðgangi ætlar WFP að endurreisa matvæladreifingu sína, og fjölga dreifingarstöðum þannig að matvæli verði afhent á 145 stöðum á Gasasvæðinu.

Gasabúar halda til síns heima.
Gasabúar halda til síns heima. Mynd: UN News

Á næstu þremur mánuðum stefnir WFP að því að brauðfæða 1.6 milljón íbúa eða um 320 þúsund fjölskyldur með kornmeti, hveiti og fjölskyldu-matarpökkum.

Rúmlega 170 þúsund tonn af matvælum undir stjórn WFP eru til reiðu í nágrenni Gasa. Þetta er nóg grundvallarfæða til að brauðfæða allar tvær milljónir Gasabúa í þrjá mánuði.  Til að hægt sé að dreifa eins miklu og þarf, verður WFP að geta treyst á skjóta og skilvirka afgreiðslu á öllum aðgangshliðum og öruggan, óhindraðann aðgang fyrir mannúðaraðstoð. Einnig þarf að endurreisa þýðingarmikla innviði og geymslur, auk skjótari afsgreiðslu í Ashdod höfn.