A-Ö Efnisyfirlit

Að spara á kostnað þróunar

Aid. Flickr kehityslehti CC BY NC 2.0

 Aid. Flickr kehityslehti CC BY NC 2.0

Júní 2015. Finnska ríkisstjórnin hefur ákveðið að minnka útgjöld til þróunaraðstoðar um 40-43%. 

Dregið verður úr beinum framlögum um 300 milljónir Evra eða andvirði 45 milljarða íslenskra króna. Að auki munu tekjur af koltvýserings losunar viðskiptum ekki renna lengur til þróunarmála.

Aid. Lenita Toivakka left visited Turkey in February 2015. Flickr Team Finland CC BY NC ND 2.0Lenita Toivakka, utanríkisviðskipta- og þróunarmálaráðherra segir að niðurskurðurinn sé nauðsynlegur til að draga úr skuldum Finnlands. 

„Þetta er hvorki byggt á siðferðilegum né hugmyndafræðilegum grunni, heldur er þetta einfaldlega af efnhagslegum orsökum. Efnahagslíf okkar sekkur sífellt dýpra. Til lengri tíma litið mun Finnland standa fast við að ná 0.7% markinu.“

Þar vísar ráðherrann til markmiðs Sameinuðu þjóðanna um að þróuð ríki láti 0.7% þjóðartekna renna til þróunarsamvinnu.

Að sögn Toivakka var einhugur um niðurskurðinn innan ríkisstjórnarinnar. Engu að síður leynist engum að flokkur Sannra Finna hefur haft einhver áhrif á umfang niðurskurðarins, sem hefur verið stefna hans um langt árabil, og hugsanlega úrslitakrafa við myndun samsteypustjórnarinnar.

Síðasta ár varði Finnland andvirði 0.6% af þjóðartekjum sínum í þróunaraðstoð. Frá og með næsta ári verður þetta hlutfall 0.35%.

Kastljós fjömiðla utan Finnlands beindist ekki síst að þessari ákvörðun sökum þess að á sama tíma juku til dæmis Þjóðverjar sína meira en dæmi eru um í sögu sambandslýðveldisins.

Að skera niður hjá hinum fátækustu?

Ekki er ljóst hvar niðurskurðarhnífurinn kemur niður. Að sögn Toivakka, munu stærstu þiggjendur aðstoðar, missa mest. Samkvæmt því verða Aid. Child in the slums of Nairobi. Flickr Kehityslehti CC BY NC 2.0það lönd á borð við Tansaníu, Kenía og Víetnam auk alþjóðlegra samtaka og stofnana Sameinuðu þjóðanna.

Toivakka staðfestir að Finnland muni fjármagna færri stofnanir Sameinuðu þjóðanna og einbeita sér að þeim sem standa finnskum gildum nærri, svo sem Jafnréttisstofnun SÞ (UN WOMEN) , Barnahjálpin (UNICEF) og Mannfjöldastofnunin (UNFPA). 

„Meir en 500 samtök fá stuðning frá ríkinu. Það er mikið fyrir lítið ríki. Við munum samt ekki gleyma hinum fátækustu og við munum einbeita okkur sérstaklega að því að bæta hag kvenna og barna í þróunarríkjum.“

Þróunarsamtök saka ráðherrann um að gera lítið úr þeim áhrifum sem niðurskurðurinn hefur í för með sér. Að mati Kepa, regnhlífarsamtaka almannasamtaka í þróunarmálum, gerir ríkisstjórnin nákvæmlega það sem hún segist ekki ætla að gera: að skera niður hjá hinum fátækustu.

„Fyrirhugaður niðurskurður er jafnvirði 0.06 til 0.08% af fjárlögum ársins. Þetta er lítið í samhengi við hagkerfi okkar en fyrir milljónir manna sem þiggja þessa aðstoð, eru afleiðingarnar geigvænlegar. Niðurskurðurinn mun grafa undan áralöngu og skilvirku starfi frjálsra félagasamtak,“ skrifar Timo Lappalainen, framkvæmdastjóri Kepa.

Í sameiginlegri yfirlýsingu finnskra samtaka sem vinna að málefnum Sameinuðu þjóðanna er bent á að baráttan gegn fátækt í heiminum og fyrir brautargengi sjálfbærrar þróunar, komi veitendum aðstoðar til góða með því að minnka útbreiðslu sjúkdóma, fólksflutninga og hryðjuverk.

Aid. Students in South Africa do math with help from Nokia mobile phones. Flickr kehityslehti CC BY NC 2.0Ríkisstjórnin vísar gagnrýni á bug. Toivakka leggur áherslu á að þegar tekjurnar minnki, þurfi að verja þeim á enn skynsamlegri hátt en fyrr. Þannig þurfi að auka gagnsæi og að sameina verkefni.

„Við getum ekki varið hluta fjárlaga til þróunaraðstoðar til þess eins að bæta samviskuna. Þegar við eyðum milljörðum dala af skattfé í þróunaraðstoð, þurfum við að vita hvaða áhrif hún hefur.”

Ísland fetar sömu braut

Gunnar Bragi Sverrisson, utanríkisráðherra, lagði fram þingsályktunartillögu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2016 til 2019 í byrjun júní. Þar er dregið verulega úr áætluðum markmiðum um þróunaraðstoð og er nú stefnt að því að framlög til þróunarsamvinnu verði 0.30% af þjóðartekjum árið 2019.