
Navi Pillay
Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna segir að nýjar upplýsingar sem Wikileaks hafi komið á framfæri rennin stoðum undir að alvarleg brot á alþjóðlegum mannréttindalögum hafi viðgengist í Írak; þar á meðal aftökur fjölda óbreyttra borgara án dóms og laga og slæm meðferð handtekinna.
Mannréttindafulltrúinn (UN High Commissioner for Human Rights), Navi Pillay segir í yfirlýsingu að skýrslurnar bendi til að Bandaríkin hafi afhent Írökum þúsundi manna sem þeir hefðu handtekið, þrátt fyrir að þeir hafi vittað af pyntingum og illri meðferð af hálfu íraskra yfirvalda.
Skorað er á bandarísk og írösk yfirvöld að grípa þegar í stað til aðgerða í því skyni að rannsaka innihald þessara skýrslna og draga til ábyrgðar þá sem beri ábyrgð á ólöglegum manndrápum, aftökum án dóms og laga, pyntingum og öðrum mannréttindabrotum í samræmi við alþjóðlega mannréttindalög, þar á meðal Sáttmálann um borgaraleg og pólitísk réttindi sem bæði Bandaríkin og Írak eiga aðild að.
Þá eru Írakar hvatti til að staðfesta Sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum og leyfa Sameinuðu þjóðunum að kanna aðstæður allra fanga.

