Mannréttindi. Tyrkland.
Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur lýst áhyggjum sínum af því að tyrknesk yfirvöld hafa fangelsað níutíu og tvo einstaklinga undanfarna viku, þar á meðal Ekrem İmamoğlu lýðræðislega kjörinn borgarstjóra Istanbul. Hann er í haldi sakaður um spillingu og hefur verið vikið úr embætti.
„Þeim sem fangelsaðir hafa verið fyrir að nýta lögmæt réttindi sín, ber að sleppa tafarlaust og skilyrðislaust,” sagði Liz Throssell talsmaður Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. „Það ber að koma fram við þá sem bornir eru sökum með virðingu, og tryggja að fullu að réttindi þeirra til sanngjarnrar málsmeðferðar og réttarhalda, þar á meðal aðgang að lögfræðingi að eigin vali, verði virt.“
Istanbul: borgarstjóranum Ekrem İmamoğlu hefur verið vikið úr embætti og hann sakaður um spillingu.Mynd: Fatih/ Unsplash
Rannsaka ber valdbeitingu
Þessar handtökur hrundu af stað mótmælum um allt Tyrkland. Yfrvöld bönnuðu hins vegar alfarið mótmæli í þremur borgum. 1400 manns hafa verið handtekin, þar á meðal níu fjölmiðlastarfsmenn, sem fylgdust með mótmælunum.
„Við hvetjum yfirvöld til að tryggja að fólk geti notið tjáningarfrelsis og fundafrelsis í samræmi við alþjóðalög. Þeim ber einnig að rannsaka rækilega trúverðugar frásagnir af misbeitingu valds gegn mótmælendum,“ sagði Throssell í yfirlýsingunni.
