A-Ö Efnisyfirlit

Allsherjarþingið endurnýjaði umboð UNRWA

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt með miklum meirihluta atkvæða að endurnýja umboð Palestínu-flóttamannahjálparinnar (UNRWA) til þriggja ára.

151 ríki greiddi atkvæði með, 14 sátu hjá og 10 voru á móti, þar á meðal Bandaríkin og Ísrael.

„Ég fagna þessari afgerandi niðurstöðu,” sagði Philippe Lazzarini forstjóri UNRWA í yfirlýsingu. „Í henni felst einnig viðurkenning á ábyrgð alþjóðasamfélagsins á þörf palestínskra flóttamanna fyrir mannúðaraðstoð og framþróun á meðan þess er beðið að lausn finnist á áratugalangri þrautagöngu þeirra.”

Starfsmaður UNRWA í rústum á Gasa. Mynd: UNRWA
Starfsmaður UNRWA í rústum á Gasa. Mynd: UNRWA

Veigamikið hlutverk

Palestínu-flóttamannahjálpin (UNRWA) var stofnuð í kjölfar stríð Ísraela og Araba 1948-1949 í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar Ísraels. Hún hefur sinnt menntun, heilsugæslu, mannúðaraðstoð og félagsmálum fyrir palestínska flóttamenn ekki aðeins á herteknu svæðum Ísraelsmanna í Palestínu heldur einnig í Líbanon, Sýrlandi og Jórdaníu.

UNRWA hefur átt undir högg að sækja eftir Ísraelar bönnuðu starfsemi flóttamannahjálparinnar í ísrael í janúar 2025.