Úkraína. Allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þar sem krafist er heildstæðs, réttláts og varanlegs friðar í Úkraínu.
Hundrað og sjö ríki samþykktu ályktunina, tólf voru á móti en fimmtíu og eitt ríki sat hjá, þar á meðal Bandaríkin.
Í ályktuninni var þess einnig krafist að stríðsfangar yrðu látnir lausir og fólki sem þvingað hefði verið frá heimilum sínum leyft að snúa aftur heim, þar á meðal börnum.
Allsherjarþingið tók upp þráðinn þar sem frá var horfið á fyrri neyðarfundi í tilefni af því að fjögur ár eru liðin frá allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu 24. febrúar.
Allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu fordæmd
Öll Evrópusambandsríki greiddu atkvæði með tillögunni, nema Ungverjaland sem sat hjá. Nokkur stór og áhrifamikil ríki á borð við Bandaríkin, Brasilíu, Indland, Katar, Kína og Sádi-Arabíu sátu einnig hjá. Venesúela greiddi ekki atkvæði.
Á meðal þeirra ríkja sem greiddu atkvæði gegn henni voru auk Rússlands, Búrkina Fasó, Búrundí, Erítrea, Hvíta-Rússland, Íran, Kúba, Malí, Nikaragúa, Níger, Norður-Kórea og Súdan.
Bandaríkin höfðu áður farið fram á að greidd yrðu atkvæði sérstaklega um tvær greinar ályktunarinnar. Var sú tillaga felld með sextíu og níu atkvæðum gegn ellefu en sextíu og tvö ríki sátu hjá. Auk Bandaríkjanna voru Rússland, Hvíta-Rússland, Ísrael, Ungverjaland, Búrkina Fasó, Búrundí og Malí á meðal þeirra ríkja sem samþykktu breytingartillöguna. Kína sat hjá og Indland greiddi ekki atkvæði.
Christina Markus Lassen fastafulltrúi Dana sagði í umræðunum að enginn vildi frið fremur en úkraínska þjóðin en friður yrði að vera réttlátur, heildstæður og varanlegur. Úkraína yrði að fá öflugar tryggingar fyrir öryggi sínu og Rússland að standa reikningsskil fyrir gerðir sínar.
„Við getum ekki horft upp á sáttmála Sameinuðu þjóðanna sé brotinn refsilaust og land tekið með valdi,“ sagði hún í ræðu sem hún flutti fyrir hönd Norðurlandanna.
