A-Ö Efnisyfirlit

Allt að 130 drengir á hverjar 100 stúlkur

summit_wed_1

summit_wed_1Fimm stofnanir Sameinuðu þjóðanna hvetja til þess að gripið sé þegar til brýnna aðgerða til að stemma stigu við því að foreldrar velji fremur að eignast eða koma drengjum á legg á kostnað stúlkna.

Sameinuðu þjóðirnar telja að þessi siður sem er algengur víða í Asíu ýti undir misnunum og ofbeldi 

“Slíkt val á kyni er dæmi um viðvarandi félagslegt- menningarlegt- politískt- og efnhagslegt óréttlæti gagnvart konum og áþreifanlegt brot á mannréttindum kvenna,” segir í yfirlýsingu stofnananna en þær hafa grandskoðað gögn um orsakir, afleiðingar og lærdóma sem draga má af þessu kynjavali.

Konur eru oft undir miklum þrýstingi að eignast son og sækjast eftir að vita kyn fósturs í móðurkviði. Reynist fóstrið vera kvenkyns getur það leitt til fóstureyðingar. 

Val á kyni getur einnig gerst fyrir þungurn eða eftir fæðingu stúku með því að barnið sér vanrækt eða myrt. Að nokkrum áratugum liðnum er nú svo komið að verulega hallar á konur í kynjahlutfalli í ýmsum ríkjum sérstaklega í Suður-Austur og Mið-Asíu. Sums staðar er hlutfallið 130 drengir á hverja 100 stúlkur. 

“Það er óhugnanlegur þrýstingur á konur að eignast syni…sem hefur ekki aðeins bein áhrif á val kvenna í barneignum sem hefur áhrif á heilsu þeirra og líf; heldur neyðir þær einnig til að framlengja lægri stöðu stúlkna með því að taka drengi fram yfir þær,” segir í yfirlýsingunni.

“Konurnar þurfa svo einnig að horfast í augu við afleiðingar þess að eignast óumbeðna stúlku. Þær afleiðingar geta falist í ofbeldi, skilnaði eða jafnvel dauða,” segir í sameiginlegri yfirlýsingu Skrifstofu Mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna (OHCHR), Mannfjöldastofnunarinnar (UNFPA), Barnahjálparinnar (UNICEF, Jafnréttisstofnunarinnar (UNWOMEN) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Stofnanirnar benda á að misræmið í fjölda karla og kona vegna þessa geti leitt til mansals kvenna til giftinga í öðrum héruðum eða að bræður deili brúði.

“Ríkisstjórnir og borgaralegt samfélag verða að beita sér fyrir endurnýjuðum og samstilltum aðgerðum til að uppræta djúpstæða kynbundna mismunun sem er kjarni kynjavals.”

Stofnanirnar leggja til tiltekin skref til að kljást við vandann, þar á meðal söfnun áreiðanlegra upplýsinga um umfang vandans og þá þætti sem liggja að baki; leiðbeiningar fyrir fagmenn í heilsugeiranum um beitingu tækni; stuðningsaðgerðir við stúlkur og konur, þar á meðal umbun fyrir fjölskyldur sem eiga aðeins dætur auk annara lagalegra úrræða og vitundarvakningar.