Alþjóðlegi djassdagurinn 30.apríl er haldinn hátíðlegur í meira en 190 löndum. Gestjafi hátíðarinnar á heimsvísu að þessu sinni er Abu Dhabi, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Það eru UNESCO og Herbie Hancock djassstofnunin sem hafa veg og vanda af djassdeginum.
Á næstu fimm vikum verðar haldnir djasstónleikar, fræðsludagskrár og viðburðir í Abu Dhabi. Stjörnuprýddir tónleikar (All-Star Global Concert) verða sendir út í beinni útsendingu frá Etihad Arena á alþjóðlega djassdeginum klukkan 8 að íslenskum 30.apríl. Fylgjast má með tónleikunum á UN WebTV. YouTube og Facebook.
Alþjóðlegi djassdagurinn brýtur niður múra
„Djass hefur alltaf snúist um að leiða fólk saman, rjúfa múra og hvetja til sköpunar þvert á menningarheima,“ segir Herbie Hancock góðgerða sendiherra UNESCO. „Alþjóðlegi djassdagurinn minnir okkur á að tónlist hefur afl til að brjóta niður landamæri, ýta undir samræður og vekja gleði og von.”
Á meðal þeirra sem koma fram á tónleikum Alþjóðlega djassdagsins eru Herbie Hancock, John Beasley, Kenny Barron , Danilo Perez , A Bu, Dee Dee Bridgewater, Dianne Reeves, Varijashree Venugopal, David Sanchez, Tia Fuller, Tomoaki Baba, Linda May Han Oh, John Patitucci, Terri Lyne Carrington, Arqam Al Abri og Elena Pinderhughes. Kynnir er breski leikarinn Jeremy Irons.
Alþjóðlegi djassdagurinn: Af hverju djass?
- Djass brýtur niður múra og skapar tækifæri til gagnkvæms skilnings og umburðarlyndis;
- Djass eflir tjáningarfrelsis;
- Djass er tákn sameiningar og friðar;
- Djass dregur úr spennu milli einstaklinga, hópa og samfélaga;
- Djass hvetur til listrænnar nýsköpunar, spuna, nýrra tjáningarforma og endurnýjunar hefðbundinna tónlistarforma;
- Djass örvar þvermenningarlega umræðu og styrkir ungt fólk frá jaðarsettum samfélögum.
Fylgjast má með tónleikunum á UN WebTV. YouTube og Facebook.
