A-Ö Efnisyfirlit

Alþjóðlegi klósettdagurinn 2026: Örugg salerni. Jöfn framtíð

Hreinlætisaðstaða er grundvallarmannréttindi og hornsteinn sjálfbærrar þróunar. Mynd: UNICEF/Brandon Lopez
Hreinlætisaðstaða er grundvallarmannréttindi og hornsteinn sjálfbærrar þróunar. Mynd: UNICEF/Brandon Lopez

Alþjóðlegi klósettdagurinn 2026 snýst um hreinlætisaðstöðu og jafnrétti kynjanna. Þemað „Örugg salerni. Jöfn framtíð.“ sýnir hvernig örugg hreinlætisaðstaða verndar heilsu, öryggi, reisn og tækifæri kvenna og stúlkna – og gerir þeim kleift að ganga í skóla, stunda vinnu og taka fullan þátt í samfélaginu.

Alþjóðlegi klósettdagurinn 2026, sem haldinn er 19. nóvember, er árlegur dagur Sameinuðu þjóðanna sem miðar að því að hvetja til aðgerða í þágu heimsmarkmiðs 6 um sjálfbæra þróun: hreint vatn og hreinlætisaðstaða fyrir alla. Áhrifin eru sérstaklega áberandi í skólum, á vinnustöðum, í heilbrigðisstofnunum og á almannafæri, þar sem skortur á öruggum, hreinum og aðgengilegum salernum getur orðið hindrun fyrir þátttöku.

Fyrir unglingsstúlkur er aðgangur að öruggum, lokuðum og hreinlegum salernum nátengdur möguleikum þeirra til að sækja skóla, takast á við blæðingar með reisn og taka fullan þátt í námi. Mynd: UNICEF/UN0353541/Ijazah
Fyrir unglingsstúlkur er aðgangur að öruggum, lokuðum og hreinlegum salernum nátengdur möguleikum þeirra til að sækja skóla, takast á við blæðingar með reisn og taka fullan þátt í námi. Mynd: UNICEF/UN0353541/Ijazah

Sem dæmi þarf ein af hverjum fimm unglingsstúlkum á aldrinum 10–19 ára að deila óhreinlegum salernum með öðrum fjölskyldum eða nota opin svæði. Á heimsvísu eru færri en einn af hverjum þremur skólum með ruslafötur fyrir tíðavörur á stúlknasalernum. Þessar staðreyndir sýna að ekki er hægt að mæla hreinlætisaðstöðu eingöngu út frá fjölda þeirra salerna sem reist hafa verið. Öryggi þeirra, aðgengi, næði, virkni og geta til að mæta þörfum ólíkra notenda skipta jafnmiklu máli.

Alþjóðlegi klósettdagurinn: Tryggjum aðkomu að ákvarðanatöku

Hreinlætisaðstaða tengist einnig náið skiptingu valds og auðlinda. Í 79 löndum gegna konur færri en helmingi starfa á sviði vatns, hreinlætisaðstöðu og hreinlætis hjá hinu opinbera og í 23 löndum gegna þær færri en einu af hverjum tíu slíkum störfum. Nauðsynlegt er að tryggja aðkomu kvenna að ákvarðanatöku til að hanna þjónustu sem tekur mið af reynslu þeirra og forgangsröðun.

Hér eru fjögur atriði sem vert er að vita um tengsl hreinlætisaðstöðu og jafnréttis kynjanna:

Konur og stúlkur eru um helmingur þeirra sem hafa ekki aðgang að öruggum salernum og búa við aukna áhættu hvað varðar heilsu, einkalíf og öryggi. Mynd: UNICEF/UNI80744/Siddique
Konur og stúlkur eru um helmingur þeirra sem hafa ekki aðgang að öruggum salernum og búa við aukna áhættu hvað varðar heilsu, einkalíf og öryggi. Mynd: UNICEF/UNI80744/Siddique

Hreinlætisaðstaða er undirstaða jafnréttis kynjanna.

Örugg salerni vernda heilsu, öryggi, reisn og tækifæri kvenna og stúlkna – og gera þeim kleift að ganga í skóla, stunda vinnu og taka fullan þátt í samfélaginu.

Hreinlætiskreppan bitnar á öllum – en ekki jafnt.

Um 3,4 milljarðar manna búa enn án aðgangs að öruggri hreinlætisaðstöðu. Ótrygg hreinlætisaðstaða útsetur konur og stúlkur fyrir sjúkdómum, hættu og ofbeldi og skerðir rétt þeirra til heilsu, menntunar og atvinnu.

Örugg hreinlætisaðstaða er almenn mannréttindi.

Þegar hreinlætisþjónusta mætir ekki þörfum helmings fólks halda heilu samfélögin aftur af sér.

Örugg salerni þýða jafna framtíð.

Konur verða að taka þátt í að móta lausnir í hreinlætismálum til að tryggja að þjónustan gagnist öllum – svo salerni verði afl í þágu jafnréttis sem nýtist öllum, alls staðar, án mismununar.

Nærri helmingur jarðarbúa hefur ekki aðgang að öruggri hreinlætisaðstöðu.
Nærri helmingur jarðarbúa hefur ekki aðgang að öruggri hreinlætisaðstöðu. Mynd: © UNICEF/UN0304111/Arcos

Vissir þú? (Heimildir: UNICEF, UN Water)

  • 354 milljónir manna ganga enn örna sinna undir berum himni.
  • 1,2 milljarðar manna hafa fengið aðgang að öruggri hreinlætisaðstöðu frá árinu 2015, sem sýnir framfarir en undirstrikar jafnframt umfang þeirrar áskorunar sem eftir er.
  • Ein af hverjum fimm unglingsstúlkum á aldrinum 10–19 ára þarf að deila óhreinlegum salernum með öðrum fjölskyldum eða nota opin svæði.
  • Færri en einn af hverjum þremur skólum á heimsvísu eru með ruslafötur fyrir tíðavörur á stúlknasalernum.
  • Í 79 löndum gegna konur færri en helmingi starfa á sviði vatns, hreinlætisaðstöðu og hreinlætis (WASH) hjá hinu opinbera og í 23 löndum gegna konur færri en einu af hverjum tíu slíkum störfum.
  • Um 1.000 börn undir fimm ára aldri deyja á hverjum degi af orsökum sem tengjast ótryggu vatni, hreinlætisaðstöðu og hreinlæti.