Vinnuslys. Alþjóðlegi öryggis- og heilsuverndardagurinn á vinnustöðum er haldinn árlega þann 28. apríl til að stuðla að forvörnum gegn vinnuslysum og atvinnusjúkdómum um allan heim. Þetta er vitundarvakningarherferð sem ætlað er að beina alþjóðlegri athygli að umfangi vandans og hvernig efling og sköpun öryggis- og heilsumenningar getur hjálpað til við að fækka dauðsföllum og meiðslum tengdum vinnu.
Það er á ábyrgð okkar allra að koma í veg fyrir dauðsföll og meiðsli í starfi. Sem stjórnvöld berum við ábyrgð á að útvega þá innviði – lög og þjónustu – sem nauðsynlegir eru til að tryggja að starfsfólk haldi vinnufærni sinni og að fyrirtæki dafni. Þetta felur í sér þróun landsstefnu og áætlunar og eftirlitskerfis til að framfylgja lögum og stefnu um öryggi og heilsu á vinnustöðum. Sem vinnuveitendur berum við ábyrgð á að tryggja að vinnuumhverfið sé öruggt og heilsusamlegt. Sem starfsfólk berum við ábyrgð á að vinna á öruggan hátt, vernda okkur sjálf og stofna ekki öðrum í hættu, þekkja réttindi okkar og taka þátt í framkvæmd fyrirbyggjandi aðgerða.
Alþjóðlegi öryggis- og heilsuverndardagurinn á vinnustöðum
Nýjar og upprennandi áhættur í starfi geta stafað af tækninýjungum eða félagslegum eða skipulagslegum breytingum, svo sem:
- Ný tækni og framleiðsluferlar, t.d. nanótækni, líftækni
- Ný starfsskilyrði, t.d. aukið vinnuálag, vinnuálag vegna fækkunar starfsfólks, slæmar aðstæður tengdar vinnuflutningum, störf í óformlega hagkerfinu
- Ný ráðningarform, t.d. sjálfstæð störf, útvistun, tímabundnir samningar
Þær geta orðið sýnilegri með betri vísindalegum skilningi, t.d. áhrif vinnuvistfræðilegra áhættuþátta á stoðkerfissjúkdóma.
Þær geta mótast af breyttum viðhorfum til mikilvægis ákveðinna áhættuþátta, t.d. áhrif sálfélagslegra þátta á vinnutengda streitu.
Alþjóðlegi öryggis- og heilsuverndardagurinn á vinnustöðum sjá nánar hér.
