Svar: að hafa fengið nýja alþjóðlega daga sér til heiðurs á síðasta ári. Alls eru nú 216 alþjóðlegir dagar á vegum Sameinuðu þjóðanna og fer töluvert fjölgandi.
Tilgangur alþjóðlegra daga er að efla alþjóðlega vitund og aðgerðir á tilteknum sviðum. Gott dæmi um hve fjölbreyttir hinir nýju alþjóðadagar eru, er að Alþjóðlega körfuboltadaginn og Alþjóðlega íhugunardaginn ber báða upp á sama dag, 21.desember. Karfan er ekki eina boltaíþróttinn sem var heiðruð því knattspyrnan fær sinn dag með Alþjóðlega knattspyrnudeginum 25.maí.
Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0
Asísk dýr
Kastljósinu verður líka beint að tveimur dýrum frá Asíu á nýjum alþjóðlegum dögum. Snæhlébarðanum fækkar óðum í heimkynnum sínum í fjallendi mið- og suður Asíu en fær alþjóðlegan dag 23.október. Markhor, skrúfuhyrnd geit er þjóðardýr Pakistans. Geitin með skrúfulaga hornin verður heiðruð ár hvert 24.maí.
Frá siðmenningu til skipulagðrar glæpastarfsemi
Aðrir nýjar alþjóðlegir dagar eru:
- Alþjóðlegur dagur drenglyndis (19.maí)
- Alþjóðlegur dagur samræðu á milli siðmenninga (10.júní)
- Alþjóðlegur dagur þróunar dreifbýlis (6.júlí)
- Alþjóðlegur dagur stúlkna og kvenna af afrískum uppruna (25.júlí)
- Alþjóðlegur dagur stöðuvatna (27.ágúst)
- Alþjóðlegur dagur til að hindra og berjast gegn hvers kyns skipulagðri glæpastarfsemi þvert á landamæri (15.nóvember)
- Alþjóðlegur dagur samvaxinna tvíbura (24.nóvember)
Fjöldinn umdeildur
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur komið á flestum alþjóðlegu daganna með samþykktum aðildarríkjanna. Sumir hafa hins vegar verið ákveðnir af einstökum stofnunum innan Sameinuðu þjóðanna.
Alls eru nú 216 alþjóðlegir dagar. Það þýðir að aðeins 149 dagar ársins hafa enga sérstaka alþjóðlega stöðu á vettvangi sameinuðu þjóðanna.
Þetta hefur ekki farið framhjá aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúar Ástralíu og Japans létu þannig í ljós áhyggjur af (of)fjölgun alþjóðlegra daga á fundi Allsherjarþingsins í síðasta ári.
Sjá lista yfir alþjóðlega daga, vikur og ár á vegum Sameinuðu þjóðanna hér.
