Alþjóðlegt ár varðveislu jökla. Alþjóðlegt ár skammtafræði. Alþjóðlegt ár friðar og trausts. Alþjóðlegt ár samvinnufélaga.
2025 er alþjóðlegt ár á fjórum ólíkum sviðum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Alþjóðlegt ár varðveislu jökla
Sameinuðu þjóðirnar helga árið 2025 varðveislu jökla auk þess að 21.mars ár hvert verður Alþjóðlegur jökladagur frá og með þessu ári.
Íslenskir og erlendir vísindamenn þjófstörtuðu alþjóðlega árinu í fyrra þegar stofnaður var alþjóðlegur grafreitur jökla á Seltjarnarnesi.
Jöklar gegna þýðingarmiklu hlutverki í að hafa taumhald á loftslaginu auk þess að vera uppspretta ferskvatns fyrir milljarða manna. Þeir eru hins vegar í hættu vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum.
Alþjóðlegt ár friðar og trausts
Allsherjarþingið samþykkti ályktun um að 2025 skyldi helgað friði og trausti. Í ályktuninni er skorað á alþjóða samfélagið að leysa deilur með viðræðum og samningum til að tryggja varanlegan frið og traust í samskiptum aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna.
Í annari ályktun var svo samþykkt að 15.nóvember skyldi vera Alþjóðlegur dagur til að berjast gegn hvers kyns skipulagðri glæpastarfsemi þvert á landamæri.
Alþjóðlegt ár skammtafræði
2025 varð fyrir valinu fyrir alþjóðlegt ár skammtafræði og tækni til að marka hundrað ára afmæli upphafs skammtafræði, sem nú er önnur tveggja helstu stoða nútíma eðlisfræði.
Árið 1925 setti franski eðlisfræðingurinn Louis-Victor de Broglie fram þá hugmynd að efnisagnir eins og rafeindin hegðuðu sér sumpart eins og bylgja.
Á vísindavef Háskóla Íslands segir að skammtafræði sé stærðfræðileg lýsing á hegðun smæstu hluta sem við þekkjum.
Alþjóðlegt ár samvinnufélaga
Markmið alþjóðlega ársins er að leggja áherslu á þýðingarmimkið hlutverk samvinnufélaga í sjálfbærri þróun. Þema ársins „Samvinnufélög byggja betri heim,” felur í sér viðurkenningu á lykilhlutverki samvinnufélaga í að takast á við helstu hnattrænu áskoranir samtímans.
Nýir áratugir Sameinuðu þjóðanna
Auk þess markar upphaf 2025 byrjun þriggja mismunandi áratuga Sameinuðu þjóðanna. Þeir eru
