A-Ö Efnisyfirlit

Alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks: „Ekkert um okkur, án okkar”

Alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks

Talið er að fatlað fólk sé 16% jarðarbúa. Svo dæmi sé tekið eru 38 þúsund manns í aðildarsamtökum Öryrkjabandalags Íslands. Alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks er haldinn 3.desember. Hann hefur verið haldinn 3. desember ár hvert frá því að Sameinuðu þjóðirnar stóðu fyrir alþjóðlegu ári fatlaðs fólks árið 1981.

Markmið alþjóðlegs dags fatlaðs fólks er að auka skilning á aðstæðum fólks með fötlun, baráttunni fyrir réttindum þess og fullri þátttöku í samfélaginu til jafns við aðra. Þema dagsins að þessu sinni er að efla forystu fólks með fötlun í þágu inngildingar og sjálfbærrar framtíðar.

Tíundi fundur aðildarríkja Alþjóðlega samningsins um málefni fatlaðra.
Tíundi fundur aðildarríkja Alþjóðlega samningsins um málefni fatlaðra. Mynd: UN Photo/Manuel Elias

Vígorð alþjóðlegra samtaka fatlaðs fólks fangar vel kjarna málsins: „Ekkert um okkur, án okkar.” Eitt af helstu forgangsatriðum í málefnum fatlaðra er að efla áhrif og forystu fatlaðra. Að fatlað fólk taki þátt, eigi sér fulltrúa og njóti inngildingar og geti þar með á virkan hátt mótað líf sitt.

Harðast úti í kreppum samtímans

Í ávarpi sínu á Alþjóðlegum degi fatlaðs fólks minnir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna á að fatlað fólk verði enn harðar fyrir barðinu á helstu kreppum, sem steðja að heiminum; hvort heldur sem er átökum, loftslagshamförum eða fátækt og ójöfnuði.

Alþjóðlegur dagur fatlaðra 3.desember.
Alþjóðlegur dagur fatlaðra 3.desember. Mynd: UNICEF:

„En þeim er einnig meinað um rétt sinn til að leggja sín lóð á vogarskálarnar til að leysa allan þennan vanda,” segir Guterres. Hann bendir hins vegar á að ríki heims hafi skuldbundið sig til að leiðrétta það óréttlæti sem fatlað fólk hafi mátt sæta.

„Í þessu felst meðal annars að fatlað fólk hefur lykilhlutverki að gegna í að móta framtíð stafrænnar tækni og hjálpartækni, einkum þar sem gervigreind kemur við sögu…Og að fatlað fólk á rétt á þátttöku í ákvarðanaferli, sem snertir líf þeirra.“

Vissir þú?

  • Að 1.3 milljarðar jarðarbúa búa við umtalsverða fötlun. Þetta samsvarar 16% íbúafjöldans eða einum manni af hverjum sex.
  • Lífslíkur sums fatlaðs fólks er allt að tuttugu árum skemmri en ófatlaðs fólks.
  • Fötluðu fólki er tvisvar sinnum hættara en öðrum við að fá þunglyndi, astma, heilablóðfall, offitu eða slæma munnheilsu.
  • Fatlað fólk verður fyrir barðinu á heilsufarslegu órettlæti vegna smánar, mismununnar, fátæktar og útilokun frá menntun og atvinnu, auk hindrana innan heilbrigðiskerfisins sjálfs. Heimild: WHO Factsheet
  • Sjá einnig heimasíðu Öryrkjabandalags Íslands hér.