A-Ö Efnisyfirlit

Alþjóðlegur dagur frumbyggja: Bjartar og dökkar hliðar gervigreindar

Alþjóðlegur dagur frumbyggja
Alþjóðlegur dagur frumbyggja. Myndir: y PAHO (vinstri), Martine Perret (mið) og UNICEF Ecuador-Arcos (hægri).

Alþjóðlegur dagur frumbyggja. Þótt beisla megi gervigreind í þágu menningarlegrar endurlífgunar, valdeflingu ungmenna og jafnvel aðlögunar að loftslagsbreytingum á hún sér einnig sínar dökku hliðar. Gervigreind kann að stuðla að hlutdrægni, útilokun og rangfærslum þegar frumbyggjar eiga í hlut. Alþjóðlegur dagur frumbyggja er haldinn 9.ágúst. 

Flest gervigreindar-kerfi eru hönnuð án þátttöku frumbyggja. Slíkt eykur hættu á misnotkun upplýsinga, þekkingar og séreinkenna.

Samar teljast til frumbyggjaþjóða.
Samar teljast til frumbyggjaþjóða. Mynd: UN

Því til viðbótar kann starfræksla gríðarstórra tölvuvera að hafa áhrif á lönd frumbyggja, auðlinda og vistkerfa. Þetta er nýnæmi og bætist ofan á skertan aðgang að nýrri tækni, sérstaklega í dreifbýli, sem hindrar frumbyggja í fullri þátttöku í gervigreindar-þróun.

Virða ber höfundarrétt frumbyggja, nýta hugvit þeirra til sköpunar og við ákvarðanatöku. Slíkt er nauðsynlegt til að gervigreind nýtist að fullu. Aðlögun, gagnayfirráð og nýsköpun byggð á menningu eru lykilatriði til að tryggja að gervigreind styrki samfélög frumbyggja.

Alþjóðlegur dagur frumbyggja 9.ágúst mun varpa kastljósi á þessi málefni. Þema alþjóðlega dagsins að þessu sinni er Frumbyggjar og gervigreind: að vernda réttindi, að skapa framtíðina.

Sameinuðu þjóðirnar halda málþing um frumbyggja og gervigreind 8.ágúst og má fylgjast með, meðþví með því að skrá sig hér.

Frumbyggja samfélög eru margs konar.
Frumbyggja-samfélög eru margs konar. Mynd: UN

Við þurfum frumbyggjasamfélög til að skapa betri heim 

Talið er að 476 milljónir manna fylli flokk frumbyggjaþjóða í 90 ríkjum. Þeir eru innan við 6% veraldarbúa, en eru samt 15% hinna fátækustu. Þeir tala yfirgnæfandi meirihluta þeirra 7 þúsund tungumála, sem töluð eru í heiminum, og eiga heiður af 5 þúsund mismunandi menningarheildum.

Frumbyggjaþjóðir hafa erft, og láta einstæða menningu dafna, þær hafa sérstaka nálgun við samskipti við fólk og tengsl við umhverfið.

Þeir hafa varðveitt félagsleg, menningarleg, efnahagsleg og stjórnmálaleg einkenni sem eru frábrugðin ríkjandi samfélögum þar sem þeir búa.

Víða er pottur brotinn.
Víða er pottur brotinn. Mynd: UN

Réttindi brotin

Frumbyggjar hafa í mörg ár sóst eftir viðurkenningu á sjálfsmynd sinni, lífsháttum og rétti sínum til hefðbundinna landsvæða og náttúruauðlinda. Samt sem áður hafa réttindi þeirra verið brotin í gegnum söguna. Frumbyggjar í dag eru vafalaust meðal þeirra sem eru verst staddir og viðkvæmastir í heiminum.

Alþjóðasamfélagið viðurkennir nú að sérstakar ráðstafanir eru nauðsynlegar til að vernda réttindi þeirra og viðhalda einstökum menningarheimum þeirra og lífsháttum.

Til að auka vitund um þarfir þessa fólks er Alþjóðlegur dagur frumbyggja heimsins haldinn 9. ágúst ár hvert. Þessi dagur var valinn sökum þess að þann dag var fyrsti fundur vinnuhóps Sameinuðu þjóðanna um frumbyggja haldinn í Genf 1982.

Vissir þú?

• Í Pólýnesíu eru verndunarverkefni undir stjórn frumbyggja, sem nota gervigreind til að fylgjast með heilsu kóralla

.• Á svæðum inúíta eru gervigreindarlíkön þróuð í samvinnu við visku frumbyggja til að hjálpa samfélögum að aðlagast loftslagsbreytingum.

• Á Nýja-Sjálandi er gervigreind beisluð til að endurlífga maórítungumálið.