A-Ö Efnisyfirlit

Alþjóðlegur dagur gegn barnaþrælkun: Barnaþrælkun minnkaði loks 2024

Ungur drengur tekur sér hvíld frá vinnu sinni í steikjandi hita í Tælandi.
Ungur drengur tekur sér hvíld frá vinnu sinni í steikjandi hita í Tælandi. Mynd: UNICEF/Arun Roisri

Alþjóðlegur dagur gegn barnaþrælkun. Nærri 138 milljónir barna sættu barnaþrælkun árið 2024. Þar af þurftu 54 milljónir að stunda hættulega og heilsuspillandi vinnu, sem líklega stofnaði heilbrigði þeirra, öryggi, og þroska í hættu. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóða vinnumálastofnunarinnar (ILO) og UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan kemur út í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn barnaþrælkun 12.júní.

Góður fréttirnar í skýrslunni eru að 22 milljónum færri börn sæta barnaþrælkun miðað við 2020. Þar með hefur gengið til baka fjölgun sem varð á árabilinu 2016 til 2020. Þrátt fyrir þetta hefur veröldin ekki staðið við það fyrirheit að uppræta barnaþrælkun fyrir 2025.

Alþjóðlegur dagur gegn barnaþrælkun er 12.júní en skýrslan (Child Labour: Global estimates 2024, trends and the road forward) kemur út degi fyrr á Alþjóðlegum degi leiks. Í henni kemur glöggt fram að þótt árangur hafi náðst er milljónum barna synjað um að læra, leika og einfaldlega vera börn.

Ung stúlka sem glímir við mænuveiki í vinnu í námu á Madagaskar.
Ung stúlka sem glímir við mænuveiki í vinnu í námu á Madagaskar. .Mynd: UNICEF/Safidy Andrianantenain

Barnaþrælkun mest í landbúnaði

„Niðurstöðurnar vekja von og sýna að árangur er mögulegur,“ segir Gilbert F. Houngbo forstjóri ILO. „Það verður hins vegar að sjá til þess að foreldrum standi sómasamleg vinna til boða, til að þau hafi efni á að börnin stundi nám í stað þess að vera við sölustörf á mörkuðum eða við vinnu á sveitabæ fjölskyldunnar til að færa björg í bú.“

Samkvæmt nýju tölunum er landbúnaður frekastur á vinnu barna. 61% barna sem sæta þrælkun vinna í landbúnaði en þar á eftir koma þjónustugreinar (27%), til dæmis heimilisstörf, og iðnaður (13%) þar á meða verksmiðjuvinna og námagröftur.

Barnaþrælkun hefur helmingast frá árinu 2000 og farið úr 246 milljónum í 138 milljónír.

Sjá einnig hér.