A-Ö Efnisyfirlit

Allir fastafulltrúar Norðurlandanna hjá SÞ eru konur

Merete Fjeld Brattested afhendir António Guterres trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Noregs hjá Sameinuðu þjóðunum.
Merete Fjeld Brattested afhendir António Guterres trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Noregs hjá Sameinuðu þjóðunum.Mynd: UN Photo

Alþjóðlegur dagur kvendiplómata. Þótt miklar breytingar hafi orðið á síðustu áratugum eru konur enn sem komið er, fremur lítill minnihluti innan utanríkisþjónusta heimsins.  Sem dæmi má nefna að konur voru aðeins 6 til 13% þátttakenda í friðarferlum í heiminum á árunum 1992-2023.

Konum fjölgar seint á þessum vettvangi þrátt fyrir vitundarvakningu, alþjóðlegar skuldbindingar og stefnumörkun um jafnrétti kynjanna. Alþjóðlegur dagur kvendiplómata er 24.júní.

Engu að síður standa Norðurlöndin sig vel. Til dæmis eru konur fastafulltrúar allra  fimm norrænu ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum; Anna Jóhannsdóttir (Íslandi), Merete Fjeld Brattested (Noregi), Nicola Jane Forbes Clase (Svíþjóð), Elina Kalkku (Finnlandi) og Christina Markus Lassen (Danmörku).

Christina Markus Lassen fastafulltrúi Danmerkur hjá Sameinuðu þjóðunum ræðir við starfssistykin sín Barbara Woodward frá Bretlandi og Jérôme Bonnafont frá Frakklandi.
Christina Markus Lassen fastafulltrúi Danmerkur hjá Sameinuðu þjóðunum ræðir við starfssistykini sín Barbara Woodward frá Bretlandi og Jérôme Bonnafont frá Frakklandi. Mynd: UN Photo

Á þessum alþjóðlega degi kvendiplómata minna Sameinuðu þjóðirnar á að þröskuldarnir eru enn margir. Mismunun, staðalímyndir og pólítísk kúgun takmarka víða um heim möguleika kvenna á að taka til jafns við karla þátt í utanríkispólitík og starfi diplómata.

Anna Jóhannsdóttir afhendir António Guterres trúnaðarbréf sem fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum.
Anna Jóhannsdóttir afhendir António Guterres trúnaðarbréf sem fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Mynd: UN Photo

Alþjóðlegur dagur kvendiplómata á rætur að rekja til samþykktar Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna árið 2022. Markmiðið var að viðurkenna framlag kvenna til alþjóðlegs stjórnarerindreksturs og auka vitund um þær áskoranir sem konur mæta í þessu starfi.

Elina Kalkku fastafulltrúi Finnlands.
Elina Kalkku fastafulltrúi Finnlands. Mynd: UN Photo Loey Felipe

Konur í fjölþjóðastarfi

Merete Fjeld Brattested er sendiherra Noregs og núverandi fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum. Það kann að koma á óvart að hún er aðeins önnur konan sem gegnir þessu starfi fyrir land sitt. Hin fyrsta var forveri hennar í starfi Mona Juul. Brattested hefur langa reynslu í utanríkisráðuneytinu og telur afar mikilvægt að fleiri sjónarhorn komi við sögu í alþjóðlegu samstarfi.

„Fjölbreytni kemur ekki aðeins utanríkisstefnuni til góða heldur þjónar betri þróun á öllum sviðum,“ segir hún.

Konum fer hægt fjölgandi í hópi diplómata
Konum fer hægt fjölgandi í hópi diplómata. Mynd: N Photo/Ryan Brown

Hún bætti við: „Fjölbreytni þýðir jú einmitt að maður hefur úr ólíkum sjónarmiðum að velja þegar mál eru krufin til mergjar, hvernig þau eru rædd, hvernig vinnumenningin er, já allt hvaðeina. Ef maður ætlar sér að leysa margslungnar hnattrænar áskoranir, er mikilvægt að gera sér grein fyrir að heimurinn lítur ekki alls staðar eins út. Kyn, aldur, bakgrunnur, saga og menning móta okkur öll. “

Í starfi sínu sem sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum hittir hún fólk úr öllum heimshornum á hverjum degi.

Nicola Jane Forbes Clase fastafulltrúi Svía hjá Sameinuðu þjóðunum.
Nicola Clase fastafulltrúi Svía hjá Sameinuðu þjóðunum. Mynd: UN Photo

„Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna hittir maður fólk alls staðar að og ræðir stór heimsvandamál á borð við frið og öryggi, þróun og mannréttini. Það er mjög gefandi að vera hluti af þessu.“

Hún undirstrikar að kynjasýn sé ekki aukaatriði, heldur snar þáttur í flestum viðræðum. „Konur og karlar hafa oft ólíka útgangspunkta í umræðum og því er mikilvægt að allir séu með.“

Sjá einnig hér.