Amina J. Mohammed á Íslandi

0
30
Fótbolti fyrir markmiðin
Amina Mohammed, vara-aðalframkvæmdastjóri SÞ

Amina J.Mohammed vara-aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna heimsækir Ísland dagana 8.-10.október.  Hún er aðalræðumaður á The Imagine Forum 2023: Norræn samstaða um frið á þriðjudag.

Mánudagskvöld verður hún viðstödd þegar kveikt er á Friðarsúlunni í Viðey til heiðurs minningu Johns Lennon og tekur til máls ásamt borgarstjóra.

Vara-aðalframkvæmdastjórinn mun ræða við forseta Íslansds, forsætisráðherra og utanríkisráðherra og sitja fund utanríkismálanefndar á meðan á dvöl hennar stendur. Þá hittir hún fulltrúa Félags Sameinuðu þjóðanna, UNICEF og UN Women á Íslandi auk ungmennafulltrúa.

 Mohammed mun skoða verksummerki um loftslagsbreytingar á Langjökli og heimsækja Hellisheiðarvirkjun, svo dæmi séu tekin.