A-Ö Efnisyfirlit

Árásarinnar á Sameinuðu þjóðirnar í Bagdad minnst

wreath

20.ágúst 2013. Sameinuðu þjóðirnar minntust þess í gær að tíu ár voru þá liðin frá því tuttugu og tveir starfsmenn samtakanna féllu í sprengjutilræði í Írak. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kjölfarið að þessi dagur 19.ágúst yrði framvegis Alþjóðadagur mannúðar og eru þeir sem fórnað hafa lífi sínu í þágu mannúðar sérstaklega heiðraðir.
“Blái fáninn okkar er stundum rifinn og tættur. Á þessu ár hafa þegar fleiri félagar okkar fallið en allt árið 2012, “ sagði Ban Ki-moon við athöfn í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York og bætti því að besta leiðin til að minnast fallinna félaga, væri að halda starfi þeirra áfram.
Ban lét þessi orð falla áður en hinna tuttugu og tveggja sem féllu 19.ágúst 2003 í Írak og þeirra 30 starfsmanna Sameinuðu þjóðanna sem látist hafa síðustu tíu mánuði, var minnst með mínútu þögn.
Fyrr um daginn lagði Ban blómsveig til minningar um hina föllnu og voru fjölskyldur og vinir hinna föllnu í Bagdad fyrir tíu árum viðstaddir, þar á meðal ættingjar Sergio Vieira de Mello, sérstaks fulltrúa framkvæmdastjórans í Írak sem var á meðal þeirra sem lést í tilræðinu.
Herferð til styrktar mannúðarmálum var hleypt af stokkunum í gær eins og lesa mátti hér á vefsíðunni í gær.

Mynd. Ban Ki-moon leggur blómsveig til minningar um starfsfólkið sem féll í Bagdad. Til vinstri eru eiginkiona Ban, Yoo Soon-taek og Jan Eliasson, varaframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. SÞ-mynd/Evan Schneider.