Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til neyðarfundar í kjölfar umfangsmikilla loftárása Bandaríkjanna og Ísraels víðs vegar um Íran á laugardag. Íransstjórn gerði síðan hefndarárásir um öll Mið-Austurlönd.
António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði á fundi ráðsins að aðgerðirnar ykju hættuna á „atburðarás sem enginn getur stjórnað á óstöðugasta svæði heims.“
Aðalframkvæmdastjórinn ítrekaði að varanlegum friði yrði aðeins náð með friðsamlegum leiðum, þar á meðal heiðarlegum viðræðum. Hann benti á að sameiginleg hernaðaraðgerð Ísraels og Bandaríkjanna hefði átt sér stað í kjölfar óbeinna viðræðna milli Bandaríkjanna og Írans með milligöngu Óman, “og þar með glatast tækifæri til samninga”.
Öryggisráð: Virða ber sáttmála SÞ
Guterres sagði að stigmögnun átaka græfi undan alþjóðlegum friði og öryggi. Hann minnti á að öll aðildarríki yrðu að „virða skuldbindingar sínar samkvæmt alþjóðalögum, þar á meðal sáttmála Sameinuðu þjóðanna.“ Sáttmálinn bannar „hótun um valdbeitingu gegn landhelgi eða pólitísku sjálfstæði nokkurs ríkis, eða á annan hátt sem er ósamrýmanlegur tilgangi Sameinuðu þjóðanna.“
Aðalframkvæmdastjórinn kallaði eftir tafarlausri stöðvun hernaðaraðgerða og aðgerðum til að draga úr spennu. Hann varaði við því að ef það tækist ekki væri hætta á víðtækari svæðisbundnum átökum með alvarlegum afleiðingum fyrir almenna borgara og stöðugleika á svæðinu.
UNESCO: Brot á mannúðarlögum
Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, segir að sprengjuárás á grunnskóla í hernaðarárásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran á laugardag sé alvarlegt brot á mannúðarlögum. Flugskeytin eiga að hafa eyðilagt stúlknaskóla í Minab í suðurhluta Írans, þar sem um 150 létust og nærri 100 særðust. Talið er að margir nemendur séu meðal látinna.
Í yfirlýsingu sem birt var á samfélagsmiðlum lýsti UNESCO yfir miklum áhyggjum af áhrifum hernaðarárásanna, sem héldu áfram fram á sunnudag, og benti á að nemendur á stað sem er helgaður námi séu verndaðir samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum og að „árásir á menntastofnanir stofni nemendum og kennurum í hættu og grafi undan réttinum til menntunar.“
UNESCO tók undir með fjölda stofnana innan kerfis Sameinuðu þjóðanna og háttsettum embættismönnum, þar á meðal António Guterres aðalframkvæmdastjóra, og fordæmdi hernaðarárásirnar, sem og hefndarárásir Írans sem lentu á nokkrum löndum í Mið-Austurlöndum.

Türk: „Almennir borgarar gjalda hæsta verðið“
Volker Türk, mannréttindastjóri, birti yfirlýsingu um árásirnar á laugardag þar sem hann sagðist harma hernaðarárásir Ísraels og Bandaríkjanna víðs vegar um Íran og síðari hefndarárásir Írans.
„Eins og alltaf í vopnuðum átökum eru það almennir borgarar sem á endanum gjalda hæsta verðið”, sagði Türk. „Sprengjur og flugskeyti eru ekki leiðin til að leysa ágreining heldur leiða aðeins til dauða, eyðileggingar og mannlegra þjáninga. Ég minni alla aðila á að alþjóðalög um vopnuð átök eru mjög skýr: vernd almennra borgara er í forgangi. Hver einasti aðili sem hlut á að máli verður að tryggja að þessum lögum sé fylgt. Brot á þeim verða að leiða til ábyrgðar fyrir þá sem bera ábyrgð.”
