A-Ö Efnisyfirlit

Auga fyrir auga leiðir til blindu

nonviolence

 

nonviolence
2. október 2014. Í dag á Alþjóðlegum degi ofbeldisleysis, 2.október, minnast Sameinuðu þjóðirnar lífspeki Mahatma heitins Gandhi sem sýndi með fordæmi sínu að friðsamleg mótmæli geta haft meiri áhrif en ófriður og vopnaskak.

Rekja má mörg grundvallarsjónarmið Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var 1948, sama ár og Gandhi var myrtur, til skoðana hans.
„Nú á okkar tímum sívaxandi ofbeldis kreddufestumanna þar sem menningarleg verðmæti eru eyðilögð, er tímabært að minnast ákalls Gandhís um frið og sættir og viðvörunar hans um að kennisetningin „Auga fyrir auga“ muni að lokum blinda veröldina,“ segir Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi sínu í tilefni alþjóðlega dagsins. 

„Á þesum degi hvet ég alla til að spyrna fótum við umburðarleysi og efla mannlega samstöðu byggða á heimspeki Gandhís um ofbeldisleysi.”

Gandhí, sem lék stórt hlutverk í sjálfstæðisbaráttu Indlands, hefur verið mörgum hreyfingum sem berjast fyrir borgaralegum réttindum og félagslegum breytingum, fyrirmynd. Alla æfi var Gandhí staðfestur í þeirri trú að jafnvel við erfiðustu aðstæður og grimmilegustu kúgun, væri ofbeldisleysi hin eina færa leið.

Kenning hans var sú að “réttlátar aðferðir leiða til réttlátra lausna.” Janframt að það væri órökrétt að beita ofbeldi til að berjast fyrir friðsömu samfélagi. Gandhí hvatti til borgaralegrar óhlýðni gagnvart breskum lögum, til dæmis í hinni sögulegu Saltgöngu árið 1930.

Kenningin um ofbeldisleysi hafnar líkamlegu ofbeldi til að ná fram félagslegum- eða pólitískum breytingum. Hún hefur stundum verið kölluð „stjórnmálastefna venjulega fólksins” og hefur orðið leiðarljós stjórnmálahreyfinga um allan heim í baráttu fyrir félagslegu réttlæti.