Alþjóðlegur dagur ofbeldisleysis er haldinn ár hvert á fæðingardegi frumkvöðulsins Mahatma Gandhi, 2. október. “Ofbeldisleysi,” sagði Gandhi “er eitt öflugasta vopn mannkynsins.”
Við hjá Sameinuðu þjóðunum leitumst við að virkja afl ofbeldisleysis til að yfirstíga fordóma, binda enda á átök og efla gagnkvæma virðingu á milli þjóða og ríkja. Raunar má segja að kenningin um ofbeldisleysi sé rauður þráður í
Frímerki sem Sameinuðu þjóðirnar gáfu út 2009
á Alþjóðlegum degi ofbeldisleysis.
Sáttmála Sameinuðu þjóðanna: “að sýna umburðalyndi og lifa saman í friði, svo sem góðum nágrönnum sæmir” til “að tryggja það … að vopnavald skuli eigi beita, nema í þágu sameiginlegra hagsmuna."
Við vinnum hvern dag við það að gæða þessar háleitu hugsjónir lífi. Það gerum við með því að efla mannréttindi, leita lausna á deilum með friðsamlegum hætti, berjast fyrir því að uppræta ofbeldi gegn konum, með því að leitast við að ná Þúsaldarmarkmiðunum um þróun og leggja brýr á milli menninga og spyrna hvarvetna við fótum gegn hatri og öfgum.
Það er hvorki hægt að láta einstökum ríkjum eða alþjóðasamtökum þetta verkefni eftir. Hægt er að semja um frið við samningaborð en hann þrífst á borðum alþýðu manna. Friður skýtur rótum á meðal fólksins – hann streymir úr hjörtum einbeittra karla og kvenna. Samfélög, fjölskyldur og einstaklingar hafa lykilhlutverki að gegna í að vinna bug á ofbeldi og skapa friðsamlega menningu.
Á þessum Alþjóðlega degi ofbeldisleysis skulum við taka höndum saman um að byggja upp friðsamleg og réttlát samfélög í þágu okkar sjálfra og barna okkar.
