Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Annalena Baerbock fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands hefur verið kjörin forseti 80.Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Hún fékk 167 atkvæði í kosningu á þinginu. Hún er fyrsta konan frá Vestur-Evrópu og aðeins sú fimmta frá upphafi sem velst til forystu á Allsherjarþinginu. Jafnramt er hún sú yngsta, en Baerbock er á fertugasta og fimmta aldursári.
Baerback sagði í ræðu að loknu kjöri 2.júní að hún vildi efla starf Sameinuðu þjóðanna á kjarnasviðum þeirra; það er að segja friði, þróun og réttlæti. Hún sagðist stefna að því að vera sáttasemjari og einingarafl í starfi. Markmiðið væri að gera stofnunina skilvirkari, að hún starfi í allra þágu og væri betur í stakk búin til að fyglja á eftir Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun fram til 2030.
Opnari Sameinaðar þjóðir
Baerbock lagði áherslu á nauðsyn þess að opna Sameinuðu þjóðirnar fyrir borgaralegu samfélagi og ungu fólki. Þá ítrekaði hún mikilvægi jafnréttis og fjöltungustefnu, auk gegnsæis í ákvarðanatöku.
Þá lýsti hún stuðningi við svokallað UN80 frumkvæðið, sem miðar að því að aðlaga Sameinuðu þjóðirnar að kröfum framtíðarinnar. Hún sagði það ekki sparnaðaraðgerð heldur nauðsynlega nútímavæðingu.
Baerbock tekur við forsetaembættinu af Philemon Yang frá Kamerún, sem sat í forsæti 79.Allsherjarþingsins.
