
Ban Ki-moon ræddi við Ouattara símleiðis og lýsti þeirri von að nú þegar Gbagbo væri á valdi sveita forsetans, yrði bundinn endir á blóðsúthellingar.
Ggagbo skirrðist við að láta af völdum og neitaði að viðurkenna kosningaúrslit sem Sameinuðu þjóðirnar höfðu vottað. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði að UNOCI, friðargæslusveit samtakanna á Fílabeinsströndinni myndi halda áfram að veita stjórn landsins nauðsynlega aðstoð til að halda uppi lögum og reglu. Flóttamenn ganga framhjá bifreið UNOCI. SÞ-mynd: Basile Zoma.
