A-Ö Efnisyfirlit

Ban býður sig fram á ný

Ban Ki-moon

Ban Ki-moonBan Ki-moon tilkynnti í dag, 6. júní að hann sæktist eftir endurkjöri sem framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. 
Ban sagði á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York að hann hefði skrifað aðildarríkjum Allsherjarþingsins og Öryggisráðsins bréf þar sem hann óskaði eftir að halda áfram störfum.  

Ban sem tók við forystu Sameinuðu þjóðanna í janúar 2007, sagði að þau fjögur og hálft ár sem hann hefði verið framkvæmdastjóri hefðu verið “tímabil óvenjulegra áskorana jafnt fyrir Sameinuðu þjóðirnar sem alþjóðasamfélagið í heild.” 

 Hann sagði að Sameinuðu þjóðirnar gætu verið stoltar af þeim árangri sem samtökin hefðu náð á þessum tíma og nefndi sem dæmi að loftslagsbreytingar hefðu verið settar efst á forgangslista heimsmála; tekist hefði verið á við afleiðingar náttúruhamfara á borð við fellibylinn Nargis í Myanmar, flóðin í Pakistan í fyrra og jarðskjálftann sem jafnaði stóra hluta Haíti við jörðu í janúar 2010. Málefni þeirra sem höllustum fæti standa í heiminum hefðu áfram verið efst á blaði, ekki síst vegna alþjóðlegrar efnahagskreppu. 

Hann nefndi einnig viðleitni til að tryggja frið í Súdan, Sómalíu, Lýðveldinu Kongó og Fílabeinsströndinni  (Côte d’Ivoire) auk mótmælahreyfingarinnar sem kennd er við Arabíska vorið sem hann taldi “tækifæri sem gefst einu sinni á líftíma hverrar kynslóðar til að efla frelsi og lýðræði,” í heimshlutanum. 

“Í öllu þessu merkilega ferli og í öllum þessum kreppum hafa Sameinuðu þjóðirnar verið í fararbroddi. Á tímum áður óþekktra hnattrænna áskorana hefur í sífellt meira mæli verið litið til okkar hjá Sameinuðu þjóðunum um forystu í brýnum sameiginlegum málum. Þetta er sú áskorun sem er framundan,” sagði hann. 

Ban sagði nauðsyn krefja að nýta þann byr sem væri í kjarnorkuafvopnunarmálum og viðleitni til að stemma stigu við útbreiðslu kjarnorkuvopna og að það þyrfti að tvíefla aðgerðir til að ná félagslegu- og efnahagslegu markmiðunum sem kennd eru við Þúsaldarmarkmiðin um þróun (MDGs).

Ban er frá Lýðveldinu Kóreu (Suður-Kóreu) og starfaði sem stjórnarerindreki fyrir land sitt. Nái hann endurkjöri mun hann gegna starfi framkvæmdastjóri til ársloka 2016. Núverandi kjörtímabil hans rennur út 31. desember í ár. Hann er áttundi maðurinn sem gegnir starfi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og er enn sem komið er eini frambjóðandinn til að leiða samtökin 2012 til 2016.