A-Ö Efnisyfirlit

Ban: „Hernám Ísraels er harkalegt og niðurlægjandi.“

Ban Palestine

Ban Palestine

1. febrúar 2016. Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna vísar á bug gagnrýni Ísraelsmanna á málflutning hans um málefni Ísraela og Palestínumanna.

Forsætisráðherra Ísraels hafði meðal annars gengið svo langt að segja að orð sem Ban lét falla á fundi Öryggisráðsins væru í raun vatn á myllu palestínskra ofbeldismanna.

Ban segir að orð sín hafi verið slitin úr samhengi því hann fordæmi hnífstunguárásirnar undanfarið. „Ekkert réttlætir hryðjuverk. Ég fordæmi þau undanbragðalaust.“

Í greininni sem birtist í bandaríska blaðinu New York Times segir að það sé „óhugsandi“ að öryggisaðgerðir einar muni binda enda á ofbeldið og ítrekar orð sín í Öryggisráðinu þess efnis að gremja og vonbrigði Palestínumanna vegna hálfrar aldar hersetu færist í aukana.

„Enginn getur neitað því að dagleg reynsla af hernámi elur á reiði og vonleysi, sem eru drifkraftar ofbeldis og öfgastefna og grafa undan vonum um samninga um tveggja ríkja lausn. Landnám Ísraela eykst…Á sama tíma er hætta á að heimili þúsunda Palestínumanna verði eyðilögð vegna þránda í götu sem eru löglegir á pappírnum en fela í sér mismunun í reynd. Palestínumenn, sérstaklega ungt fólk, er að missa vonina vegna hernámsins sem virðist vera harkalegt, niðurlægjandi og endalaust.“

Mynd: Ban flytur Öryggisráðinu skýrslu 26.janúar stl.