Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur Ísraelsmenn og Palestínumenn til að halda áfram samningaviðræðum auk þess að bæta nú þegar mannúðarástandið á Gasasvæðinu. Hann viðurkennir að ólíklegt sé að friðarsamkomulag takist fyrir áramót.
“Ég hef mestar áhyggjur til skamms tíma litið af ástandinu á Gasa,” sagði Ban á fundi í tengslum við Alþjóðlegan samstöðudag með palestínsku þjóðinni sem haldinn er 29. nóvember ár hvert.
“´Ég hvet til þess að nær algjör einangrun Gasasvæðisins verði rofin enda hafa aðgerðir leitt til skorts á lífsnauðsynjun og grafið undan mannlegri virðingu,” sagði Ban og bætti við að hann fordæmdi “skilyrðislaust” flugskeytaárásir frá Gasa á Ísrael.

Ban á fundi í New York í gær (24. nóvember) i tilefni Alþjóðlega baráttudagsins sem er á laugardag 29. nóvember.
Ísrael opnaði að nýju landamærastöðvar við Gasasvæðið í dag og hleypti í gegn takmörkuðu magni birgða til einnar og hálfrar milljóna íbúa sem lifa að verulegu leyti á mannúðaraðstoð.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) var leyft að aka 9 flutningabílum fullum af matvælum inn á Gasa og Palestínuflóttamannahjálpin (UNWRA) fékk leyfi fyrir 8 flutningabílum sem fluttu hrísgrjón og mjólkurduft. Þá var leyft að dæla 440 þúsund lítrum af iðnaðargasi til orkuveitu Gasa en þar hefur verið viðvarandi rafmagnsleysi, einkum í Gasaborg.
Íbúar Gasasvæðisins eru gríðarlega háðir mannúðaraðstoð.
Talsmenn UNWRA segir að það þurfi að leyfa tvöfalt meiri birgðaflutninga til Gasa til þess að hægt sé að veita fullnægjandi þjónustu og bað um leyfi fyrir 12 flutningabílum með matvæli og þremur með lyf nú þegar.
Ísrael lokaði landamærastöðvum við Gasasvæðið fyrr í þessum mánuði í kjölfar flugskeytaárása frá Gasa. Síðan hefur verið mikill skortur á eldsneyti, mannúðaraðstoð og varningi, auk þess sem íbúar hafa ekkert getað ferðast til og frá Gasasvæðinu.

