Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna heimsækir skandinavísku löndin þrjú 10. til 12. október næstkomandi. Ban ræðir við forystumenn ríkissstjórna landanna og tekur þátt í ráðstefnum um orkumál og grænan hagvöxt, sagði Martin Nesirky, talsmaður framkvæmdastjórans á daglegum blaðamannafundi í New York í gærkvöldi, 5. október.
Framkvæmdastjórinn fer fyrst til Noregs, 10. október en þar sækir hann ráðstefnuna “Orka fyrir alla- fjármögnun aðgangs fátækra” og tekur þátt í pallborði háttsettra manna um þemað “Orkumál og leiðin til Ríó +20.”
Á meðan á dvöl hans í Osló stendur mun hann ásamt Haraldi V. Noregskonungi taka þátt í minningarathöfn um norska landkönnuðinn Friþjóf Nansen sem hlaut friðarverðlaun Nóbels og var Flóttamannafulltrúi Þjóðabandalagsins. Framkæmdastjórinn mun eiga fund með Jens Stoltenberg, forsætisráðherra og hitta norska þingmenn. Þá mun framkvæmdastjórinn heimsækja vettvang hryðjuverkaárásarinnar í Osló 22. júlí.
Daginn eftir, 11. október, mun framkvæmdastjórinn halda til Danmerkur en þar tekur hann þátt í fundi á vegum Global Green Forum en það er félagsskapur opinberra aðila og einkageirans og frjálsra félagasamtaka. Hann gengur á fund Margrétar II. Danadrottningar, ræðir við Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra og aðra ráðherra og skoðar framkvæmdir við nýjar höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Danmörku
Loks heldur Ban Ki-moon til Svíþjóðar 12. október en þar heimsækir hann leiði Dags Hammarskjöld forvera hans í embætti framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í Uppsölum. Í Stokkhólmi á hann svo fundi með Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra og fleiri ráðamönnum.
