15.júní 2016. Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og Jim Young Kim, forstjóri Alþjóðabankans, stýrðu í dag fundi ráðgjafaráðs frumkvæðisins um Sjálfbæra orku fyrir alla í Brussel.
Kynnt var á fundinum ný rammaáætlun um starf næstu fimm ára 2016-2021. „Hin nýja áætlun er mikilvægt tæki til að hrinda loforðum í framkvæmd sem gefin voru í Sjálfbæru þróunarmarkmiðunum,“ sagði Ban Ki-moon í ávarip á fundinum. Hrein orka á viðráðanlegu verði er gullinn þráður sem tengir saman hagvöxt, aukið félagslegt réttlæti og heilbrigt umhverfi,“ sagði Ban á fundi ráðgjafaráðsins.

Sjá nánar hér.
Myndir: Rachel Kyte, forstjóri átaksins, Jim Young Kim, forstjóri Alþjóðabankans, forseti Íslands og Ban Ki-moon. Neðri mynd af ráðgjafaráðinu. ( Sustainable Energy for All)

