23.september 2016. Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra afhenti í gær Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, fullgildingarskjal því til staðfestingar að Ísland hafi fullgilt Parísar-samninginn um loftslagsmál.

Samstarfssamningur Íslands og WFP
Þá undirrituðu utanríkisráðherra og Ertharin Cousin, framkvæmdastjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), í gær samning um framlög Íslands til verkefna WFP sem miða að því að ná öðru Heimsmarkmiðinu, um útrýmingu hungurs fyrir árið 2030. WFP er áherslustofnun Íslendinga í mannúðarmálum og er samstarfssamningurinn sá fyrsti sem Ísland gerir við stofnunina.

„Þegar neyðarástand skapast þá metur WFP það mjög mikils að eiga samstarfsaðila eins og Íslendinga sem gera okkur kleift að bregðast skjótt og vel við neyð allra þeirra milljóna manna sem búa við átök eða náttúruhamfarir,” sagði Ertharin Cousin, framkvæmdastjóri WFP
Á næstu fimm árum greiðir Ísland á grundvelli samningsins að minnsta kosti 250 milljónir króna (2,2 milljónir bandaríkjadala) í almenn framlög. Samningurinn gerir einnig ráð fyrir eyrnamerktum framlögum í samræmi við áform íslenskra stjórnvalda um beinar greiðslur til viðbótar við almennu framlögin.
WFP hefur frá árinu 2003 notið góðs af viðbragðssamningi við Íslensku friðargæsluna sem hefur ráðið íslenska sérfræðinga til starfa hjá stofnuninni. Með nýja samstarfssamningnum verður viðbragðssamningurinn útvíkkaður til að auka getu WFP til að bregðast við hættuástandi og styrkja aðgerðir í tengslum við matvælaaðstoð.
(Fréttatilkynningar frá Utanríkisráðuneytinu og WFP).
Myndir: Fáni Íslands við höfuðstöðvar SÞ í New York. UN Photo/Loey Felipe
Lilja og Ban Ki-moon, Lilja og Cousins. Utanríkisráðuneytð.

