Vopnahlé. Gasasvæðið
Yfirmaður UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálparinnar, hefur varið við því að með banni Ísraels við starfi stofnunarinnar feli í sér „skemmdarverk” á vopnahléi á Gasasvæðinu.
Philippe Lazzarini forstjóri UNRWA skrifaði á samskiptamiðlinum X að „með því að hindra starf UNRWA kann að vera unnið skemmdarverka á vopnahléinu á Gasa, og fólk sem hefur mátt ólýsanlegar þjáningar, svipt von.”
Ísraelska þingið, Knesset, samþykkti á síðasta ári að gera UNRWA útlægt á yfirráðasvæði Ísraels frá og með 30.janúar.
Höldum áfram eins lengi og hægt er
Enginn bilbugur er þó á starfsfólki UNRWA.
„Við erum staðráðin í að fara hvergi og halda áfram að skila okkar þar til við getum það ekki lengur,“ segir Marta Lorenzo yfirmaður Evrópu-skrifstofu UNRWA í Brussel í viðtali við UNRIC. „Það er ekki aðeins siðferðileg skylda okkar, heldur höfum við umboð, sem aðeins Allsherjarþingið getur breytt.“
Palestínu-flóttamannahjálpin ber ábyrgð á helmingi mannúðaraðstoðar á Gasa. Á fyrstu þremur dögum vopnahlésins flutti UNRWA matvæli til Gasa handa einni milljón manna. UNRWA hefur fimm þúsund starfsmenn á Gasa sem sjá íbúunum fyrir nauðsynlegri þjónustu, þar á meðal sextán þúsund læknavitjunum á dag.
Tómarúm ef UNRWA hættir
„Hver mun dreifa matvælum og sinna heilbrigðisþjónustu ef starf UNRWA verður stöðvað,“ spyr Juliette Touma samskiptastjóri UNRWA.
Ísraelsríki hefur skipað UNRWA að rýma höfuðstöðvar sínar í Austur-Jerúsalem og hætta starfi þar frá og með 30.janúar 2025.

Marta Lorenzo bendir á að bann við starfi UNRWA í Austur-Jerúsalem standist ekki alþjóðalög því borgarhelmingurinn sé hersetinn af Ísrael.
Bannið tekur einnig fyrir öll tengsl ísraelskra embættismanna og UNRWA. „Bannið gerir UNRWA afar erfitt fyrir við að samræma starfið og verkefni á Gasasvæðinu og á Vesturbakkanum,“ segir Lorenzo.
Brot á stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna
„Þetta bann á sér ekkert fordæmi. Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna virðir að vettugi umboð UNRWA, sem samþykkt hefur verið á Allsherjarþingi samtakanna. Þetta brýtur í bága við stofnsáttmala Sameinuðu þjóðanna og skyldur Ísraels samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum.“
Hún bendir einnig á hið einstaka umboð UNRWA.
„Ef okkur er gert að hverfa á braut, hver mun þá vera í stakk búinn að reka menntakerfið?, segir Lorenzo. „Menntunin hefur tapast. Í nærri tvö ár hafa börn á Gasa ekki gengið í skóla.“
UNRWA hefur sinnt kennslu 660 þúsund barna á Gasa, og 50 þúsund á Vesturbakkanum.
„Dýrmætasta eignin, sem Palestínumenn hafa aldrei verið rændir, er rétturinn til menntunar. Ef við getum ekki haldið skólunum opnir, hafa börnin engan annan stað en götuna.“
Rýnt fyrir ólöglegri landtöku
Frá og með 30.janúar stendur UNRWA frammi fyrir því að alþjóðlegt starfsfólki þurfi á vegabréfsáritun að halda. „Ef þau fá ekki vísu, verður starfsfólki ekki aðeins að hverfa frá Austur-Jerúsalem heldur einnig Gasa og Vesturbakkanum.”
Creative Commons Attribution-Share Alike 4.0
UNRWA hefur mótmælt harðlega og segir í yfirlýsingu: „Þessi skipun brýtur í bága við alþjóðlegar laga skyldur Ísraels sem aðildarríkis Sameinuðu þjóðanna…Stjórn Ísraels hefur þegar lýst yfir að tilgangurinn með því að úthýsa UNRWA í Sheikh Jarrah, sé að rýma fyrir ólöglegu landnámi Ísraels í Austur-Jerúsalem.”
UNRWA hefur starfað í Austur-Jerúsalem frá því á sjötta áratug tuttugustu aldar. Hún sér 70 þúsund íbúum þar fyrir grundvallar heilbrigðisþjónustu og kennir 1150 nemendum í skólum UNRWA.
Sjá nánar hér.
