A-Ö Efnisyfirlit

Barátta gegn hryðjuverkum, skerði ekki mannréttindi

BanG20web1

BanG20web1

16.nóvember 2015. Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að ríki heims verði að brögðast kröftuglega við hryðjuverkum en innan ramma laga og með virðingu fyrir mannréttindum.

Ban lét þessi orð falla á blaðmannafundi í tengslum við G20, fund 20 helstu iðnríkja heims sem nú stendur yfir í Tyrklandi. Ban hóf mál sitt á að ítreka samúðarkveðjur sínar til frönsku þjóðarinnar vegna hryðjuverkaárásarinnar á föstudag og minntist einnig „skelfilegra“ og mannskæðra árása undanfarna fjóra daga í Beirút og Bagdad.

„Við munu ræða hryðjuverk á þessum leiðtogafundi. Við þurfum líka að ræða undirliggjandi þætti ofbeldissinnaðra öfgastefna og ég mun fljótlega leggja fram aðgerðaáætlun í þessu skyni.“

Ban minnti á að fundur G20 ríkjanna væri haldinn í aðdraganda Loftslagsráðstefnunnar í París og benti á að nú lægju fyrir áætlanir flestra ríkja um niðurskurð losunar efna sem valda gróðurhúsaáhrifum. Þær væru skref í rétta átt en nægðu ekki til að halda hlýnun jarðar innan tveggja gráða eins og vísindamenn telja nauðsynlegt.